Golf

Ólafía Þórunn valin í Evrópuúrvalið í golfi fyrst Íslendinga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir heldur áfram að brjóta blað í íslenskri golfsögu en besti kylfingur þjóðarinnar hefur nú verið valin í Evrópuúrvalið í golfi.

Ólafía Þórunn er ein af níu kylfingum frá Evrópu sem munu keppa í Drottningabikarnum (The Queens) í ár þar sem úrvalslið evrópskra kylfinga keppir við þrjú önnur úrvalslið kylfinga sem koma frá Japan, Suður-Kóreu og Ástralíu.

Keppnin fer fram hjá Miyoshi golfklúbbnum í Nagoya í Japan frá 1. til 3. desember næstkomandi.

Siður-Kórea vann þessa keppni í fyrra en Japan vann þegar hún fór fram í fyrsta sinn árið 2015. Evrópska liðið hefur endaði í þriðja sæti bæði árin.

Keppnin er með svipuðu fyrirkomulagi og Ryderbikarinn. Í Drottningabikarnum er keppt í átta fjórleikjum fyrsta daginn og í níu tvímenningum annan daginn. Tvö bestu liðin spila til úrslita á þriðja deginum en hin tvö keppa um þriðja sætið.



Fyrirliði Evrópúrvalsins er Gwladys Nocera frá Frakklandi en auk hennar og Ólafíu eru í liðinu þær Melissa Reid, Florentyna Parker, Annabel Dimmock, Felicity Johnson og Holly Clyburn frá Englandi, Joanna Klatten frá Frakklandi og Carly Booth frá Skotlandi.

Þetta er mikill heiður fyrir okkar konu sem hefur verið að skrifa nýja kafla í íslenska golfsögu undanfarna mánuði.  Engin annar íslenskur kylfingur hefur komist í svona úrvalslið áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×