Viðskipti innlent

Heildarhagnaður Nýherja 266 milljónir fyrstu níu mánuði ársins

Þórdís Valsdóttir skrifar
Heildarhagnaður félagsins var 266 milljónir króna fyrstu níu mánuði ársins, samanborið við 204 milljónir króna í fyrra.
Heildarhagnaður félagsins var 266 milljónir króna fyrstu níu mánuði ársins, samanborið við 204 milljónir króna í fyrra. Vísir/Vilhelm
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Nýherja var heildarhagnaður félagsins 266 milljónir króna fyrstu níu mánuði ársins, samanborið við 204 milljónir króna í fyrra.

EBITDA nam 229 milljónum á þriðja ársfjórðungi og 682 milljónum á fyrstu níu mánuðum ársins.

„Tekjur jukust lítillega á milli fjórðunga og nemur tekjuaukning ríflega 5 prósent það sem af er ári. Á sama tíma hefur launakostnaður aukist umfram vöxt tekna, sem nauðsynlegt er að bregðast við með frekari hagræðingu í rekstri. Að því hefur verið unnið undanfarna mánuði, m.a. með nokkurri fækkun starfsfólks,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja.

Þá kom einnig fram að Nýherji muni sameinasta dótturfélögum sínum, TM Software og Applicon á næsta ári. Félögin þrjú munu þá starfa undir sama flaggi frá byrjun næsta árs. Finnur segir sameininguna vera þátt í frekari eflingu rekstrar.

„Með sameiningu félaganna verður skipulag og lausnaframboð samstæðu einfaldað, sem mun gera okkur kleift að bæta enn frekar þjónustu við viðskiptavini okkar og sækja betur samstíga fram á markaði. Að sama skapi þá mun sameining félaganna gera okkur kleift að hagræða í innviðum, samræma ferla og nýta mannauðinn betur,” segir Finnur.

Samkvæmt tilkynningunni þá hefur sala á vörum og þjónustu verið góð á tímabilinu og að sögn Finns stuðla eigin hugbúnaðarlausnir áfram að tekjuvexti. “Kjarna, launa- og mannauðskerfum verið mjög vel tekið af viðskiptavinum félagsins.”

„Við erum almennt sátt við stöðu samstæðunnar nú og framundan. Það eru vissulega ögranir í rekstrarumhverfinu, sem við munum halda áfram að takast á við, en tækifærin eru til staðar og félagið í sterkri stöðu til að nýta sér þau og vaxa áfram,“ segir Finnur.

Uppgjör félagsins í heild sinni má sjá hér.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×