Golf

Vann golfmót en fékk ekki bikarinn af því að hún er stelpa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Golfstelpan Jensi Krampel tengist ekki fréttinni  en er gott dæmi um stelpu sem ætlar sér að ná langt í golfinu.
Golfstelpan Jensi Krampel tengist ekki fréttinni en er gott dæmi um stelpu sem ætlar sér að ná langt í golfinu. Vísir/Getty
Menntaskólastelpan Emily Nash er öflugur kylfingur og svo góð að hún betri en strákarnir í sínum skóla. Kynjareglur koma hinsvegar í veg fyrir að hún fá að keppa fyrir hönd skólans síns á fylkismótinu.

Það er ekkert kvennalið í golfi í skólanum í Lunenburg, Massachusetts þar sem að Emily Nash stundar nám. Hún hefur því fengið að keppa með strákunum.

Emily gerði sér lítið fyrir og vann Central Massachusetts Division 3 golfmótið á dögunum og slá þá við öllum strákunum.

Að sjálfsögðu var bikar í verðlaun fyrir sigurinn og sigurvegarinn fékk líka þátttökurétt á fylkismótinu. Það er ef hann var strákur.

Emily Nash fékk hvorki bikarinn eða má keppa á Massachusetts fylkismótinu því samkvæmt reglunum þá mátti hún í raun ekki keppa á þessu strákamót.



Emily Nash naut enga forréttinda í mótinu og sló upphafshögg sín frá sömu teigum og strákarnir. Hún kláraði hringinn á 75 höggum og var fjórum höggum á undan efsta stráknum.

„Ég var að sjálfsögðu mjög vonsvikin en ég skil það að við þurfum að fylgja reglunum,“ sagði Emily Nash í viðtali við Telegram & Gazette sem fjallar um málið.

Strákurinn sem varð annar í mótinu og fékk bikarinn bauðst til að láta Emily fá bikarinn sem hún hafði með réttu unnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×