Golf

McIlroy keppir ekki meira á árinu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Rory McIlroy
Rory McIlroy vísir/getty
Sjötti maður heimslistans í golfi, Rory McIlroy, hefur átt mikið vonbrigðaár og ætlar að taka sér frí frá keppni það sem eftir er af árinu.

Hinn 28 ára Norður-Íri hefur ekki unnið eitt einasta mót á tímabilinu og kláraði Dunhill Links mótið síðasta sunnudag í 63. sæti.

McIlroy hefur unnið 4 risamót, en hann á sér langtímamarkmið að ná í 10 sigra á risamótum. Takist það verður hann sigursælasti golfari allra tíma sem ekki kemur frá Bandaríkjunum, en Gary Player vann 9 risamót á sínum ferli.

Hann hefur verið að glíma við meiðsli undafarin ár, nú síðast í rifbeini. Í ár keppti hann á 18 mótum, var á meðal 10 efstu manna á sjö þeirra og þar á meðal tvisvar í öðru sæti.

„Ekkert ár er tapað ár,“ sagði McIlroy í viðtali við BBC Sport. „Ég hef lært margt á þessu ári, hvernig ég skipulegg mig og haga æfingum.“

„Úrslitin hafa ekki verið eins og ég vildi, en það er ekki eins og ég hafi misst af mörgum niðurskurðum.“

„Ég mun taka sex vikur í nóvemer og desember þar sem ég kem líkamanum í stand. Þetta hefur verið erfitt ár þar sem ég hef ekki verið á réttum stað líkamlega og það tekur á andlegu hliðina,“ sagði fyrrum besti kylfingur heims, Rory McIlroy.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×