Nú verða fluttar veðurfregnir Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 10. október 2017 10:15 Anna María við verk sitt sem er til sýnis í Gallerí Gátt en það er opið miðvikudaga til sunnudaga frá klukkan 15 til 18. Vísir/Anton Brink
Vefstóllinn er mitt verkfæri og með honum miðla ég því sem ég vil, þó hann geti verið takmarkandi. Ég einskorða líka efnið sem ég vinn úr við tuskuræmur. Tilgangurinn er tvíþættur, að göfga ruslið með því að vefa úr fötum sem fólk er hætt að nota og tjá það sem mig langar að segja frá. Núna er það veðrið.“ Þetta segir Anna María Lind Geirsdóttir um verk sitt Veðurfregnir sem hún sýnir í galleríinu Gátt í Hamraborg 3 A í Kópavogi til 15. október. Hún kveðst hafa fengið góð viðbrögð frá gestum sem komið hafa á sýninguna. „Þeir túlka verkið sem veðurbrigði og þannig var það hugsað.“ En af hverju veðurfregnir? „Ég er mikið úti bæði vegna starfs míns sem leiðsögumaður og ferða minna innanbæjar á hjóli. Mér finnst það forréttindi því veðrið er svo síbreytilegt að alltaf mætir manni ný fegurð. Svo er ég heilluð af veðurfregnum. Lesararnir eru svo yfirvegaðir hvort sem þeir eru að spá aftakaverðri eða bongóblíðu og þannig hefur það alltaf verið. Pabbi minn var flugmaður og það var sussað á mig þegar ég var lítil, nú þurfti að hlusta á veðrið af athygli og ég lærði að taka eftir.“ Hvernig kynntist þú vefnaði? Mamma er finnsk og það voru alltaf tuskumottur á heimilinu. Ég snerti vefstól í fyrsta sinn þegar ég var átta ára og ákvað þá strax að þetta væri eitthvað fyrir mig. Ég lærði vefnað í Finnlandi. Það er fiskibeinsmynstur í þessu verki. Ég var dálítið búin að hugsa hvaða vend ég ætti að nota og finnst þessi passa best við mónótóninn í veðurfregnunum.“
Menning Mest lesið Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Lífið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Lífið Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni Lífið Fleiri fréttir Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira