Handbolti

Einar Andri um kynslóðarskiptin í handboltalandsliðinu: Efniviðurinn er til staðar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fjórir nýliðar voru valdir í tuttugu manna A-landsliðshóp karla í handbolta sem mætir Svíum í tveimur vináttulandsleikjum á móti Svíum hér heima í lok október.

Það eru þeir Gísli Þorgeir Kristjánsson og Óðinn Þór Ríkharðsson úr FH, Egill Magnússon úr Stjörnunni og Elvar Örn Jónsson frá Selfossi.

Guðjón Guðmundsson ræddi við Einar Andra Einarsson, þjálfari Aftureldingar, um þessi kynslóðarskipti í íslenska karlalandsliðinu í handbolta.

„Hópurinn sýnir það að þessi kynslóðarskipti, sem eru búin að vera í umræðunni í nokkur ár, eru að fara í gegn. Við erum komnir með tíu stráka sem eru fæddir 1995 og seinna. Það er því orðið hátt hlutfall af hópnum sem eru strákar sem tilheyra yngri kynslóðinni,“ sagði Einar Andri Einarsson.

Leikirnir við Svía er liður í undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir Evrópumótið í Króatíu í byrjun janúar.

„Ég held að einhver hluti af þeim muni koma til með að taka þátt í Evrópumótinu. Það verður spennandi að sjá hvernig þeir koma út í þessum landsleikjum við Svía. Þeir fá tækifæri til að sýna hverjir eiga heima þar. Ég bind vonir við að við fáum að sjá einhverja af þeim. Það væri spennandi en jafnframt erfitt,“ sagði Einar Andri.

„Þetta er rosalegt stökk og það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að þegar leikmenn eru að koma inn í þetta þá tekur það tíma. Menn þurfa tíma til að fóta sig og þurfa að fá að gera mistök. Menn verða að gera sér grein fyrir því að þetta gæti tekið einhvern tíma fyrir okkur,“ sagði Einar Andri.

„Efniviðurinn er til staðar og ef að þessir strákar fá að sýna sig og sanna þá munum við með tímanum aftur komast á þann stað sem við viljum,“ sagði Einar Andri en það má sjá allt viðtalið við hann í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×