Handbolti

Stórleikur Viggós dugði ekki til og Westwien úr leik

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Viggó í leik með Gróttu gegn ÍR á síðasta tímabili.
Viggó í leik með Gróttu gegn ÍR á síðasta tímabili. vísir/ernir
Austurríska handboltaliðið Westwien tapaði 32-27 í seinni leik liðsins gegn Wacker Thun frá Sviss í EHF bikarnum í handbolta.

Með austurríska liðinu spila þeir Ólafur Bjarki Ragnarsson og Viggó Kristjánsson. Hannes Jón Jónsson er þjálfari liðsins.

Viggó skoraði 7 mörk fyrir Westwien í dag og Ólafur Bjarki eitt.

Fyrri leiknum lauk með 27-22 sigri Wacker Thun, svo liðið vann því samanlagt 49-59 og eru lærisveinar Hannesar úr leik.


Tengdar fréttir

Valur úr leik eftir stórt tap

Valsmenn eru úr leik í EHF-bikarnum í handbolta eftir níu marka tap gegn Balatonfuredi KSE, frá Ungverjalandi, í síðari leik liðanna í dag, 28-19.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×