Handbolti

Stórsigur hjá Oddi og félögum

Oddur í leik í Olís-deildinni á sínum tíma.
Oddur í leik í Olís-deildinni á sínum tíma. vísir/vilhelm
Oddur Gretarsson og félagar unnu sannfærandi fjórtán marka sigur 36-22 á Saarlouis í þýsku 2. deildinni í handbolta í dag.

Heimamenn í Balingen-Weilstetten hleyptu gestunum aldrei inn í leikinn og leiddu með ellefu mörkum í hálfleik, 20-9, Balingen í vil.

Oddur hafði hægt um sig í leiknum, komst á blað með eitt mark í þremur skotum en hann brenndi af þegar hann fór á vítalínuna.

Tókst honum þó að gefa tvær stoðsendingar í leiknum.

Þá komst Fannar Friðgeirsson á blað með tvö mörk í naumu 24-23 tapi Hamm-Westfalen gegn Rhein-Vikings í dag.

Gestirnir í Ham-Westfalen feng tækifæri til að jafna metin í lokasókninni þegar þrjátíu sekúndur voru eftir en náðu ekki að nýta sér það.

Var þetta fjórða tap Hamm-Westfalen í síðustu fimm leikjum eftir að hafa byrjað tímabilið á fjórum sigurleikjum í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×