Körfubolti

Stólarnir frábærir í fyrri er þeir komust í 16-liða úrslitin

Hester var öflugur að vanda.
Hester var öflugur að vanda. Vísir/getty
Frábær fyrri hálfleikur dugði Stólunum til 84-76 sigurs gegn Þórsurum frá Þorlákshöfn í 32-liða úrslitum Maltbikarsins í körfubolta en Stólarnir leiddu með 23 stigum í hálfleik á heimavelli.

Þeir settu tóninn strax og leiddu 29-15 að fyrsta leikhluta loknum og bættu við forskotið í öðrum leikhluta, staðan 52-29 í hálfleik og Stólarnir í góðum málum.

Þórsarar náðu aðeins að saxa á forskotið í þriðja og fjórða leikhluta en tíminn var of naumur. Lauk leiknum með átta stiga sigri Stólanna.

Antonio Hester var stigahæstur með 21 stig í liði Stólanna en Christopher Caird bætti við fimmtán stigum. Í liði gestanna var Adam Eiður Ásgeirsson stigahæstur með 21 stig en Jesse Pellot-Rosa náði sér ekki á strik með 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×