Sjanghæ á Akureyri á válista vegna vanskila Sveinn Arnarsson skrifar 18. október 2017 06:00 Miðað við válista ríkisskattstjóra er Sjanghæ í vanda. vísir/auðunn
Fyrirtækið Life Iceland ehf. sem á og rekur veitingastaðinn Sjanghæ á Akureyri var skráð á válista Ríkisskattstjóra þann 31. ágúst síðastliðinn. Fyrirtækið komst í fréttir fyrir skömmu þegar Ríkisútvarpið birti fréttir af meintu mansali á staðnum. Ríkisskattstjóra er heimilt að fella virðisaukaskattskyldan aðila af virðisaukaskattskrá hafi fyrirtækið ekki staðið skil á virðisauka tvö uppgjörstímabil í röð. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir fyrirtæki þurfa að gera grein fyrir sínum málum.Jóhannes Már Sigurðarson, lögmaður„Hafi fyrirtæki sætt áætlun virðisaukaskatts í tvö uppgjörstímabil eða lengur er ríkisskattstjóra heimilt að fella það af virðisaukaskattsskrá. Ekki er hægt að skrá sig aftur nema fyrst sé gerð grein fyrir virðisaukaskattskýrslum og greiddur virðisaukaskattur til ríkissjóðs.“ Sjanghæ er í eigu Rositu Yufan Zhang sem hefur búið og starfað hér á landi í langan tíma. Jóhannes Már Sigurðarson, lögmaður fyrirtækisins, segir þetta ekki stórmál. „Það geta verið nokkrar ástæður fyrir þessu,“ segir Jóhannes Már. „Það stóð til að opna veitingastað í Hafnarfirði og hún hafði unnið að opnun þess staðar. Svo urðu vanskil á leigu hjá henni og það fór í smá uppnám. Kannski gæti það verið út af því. Það hefur verið fjárhagsvandi í kringum þetta allt saman og því gæti það hafa haft áhrif. “ Mikil umfjöllun hefur verið um Sjanghæ síðustu vikur. Fréttir voru um að grunur væri um vinnumansal á staðnum þar sem starfsmenn hafi verið hlunnfarnir um laun. Eftir skoðun Einingar Iðju á gögnum staðarins hafi komið í ljós að laun hafi verið greidd samkvæmt kjarasamningum. Síðan hafi ákvörðun verið tekin af eiganda staðarins um að stefna beri fréttamönnum Ríkisútvarpsins vegna umfjöllunar sem skaðað hafði fyrirtækið. Fréttaflutningur af meintu mansali hafi hins vegar birst eftir að fyrirtækið lenti á válista ríkisskattstjóra. Einnig segir Jóhannes líklegt að breytingar á atvinnuflokkum geti haft einhver áhrif hvað þetta varðar. Skipt var um endurskoðendur og bókara fyrir skömmu og var verið að færa atvinnuflokk fyrirtækisins. Það gæti verið ástæða þess að fyrirtækið sé nú á válista.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Launin reyndust tæp hálf milljón á mánuði Sjanghæ var lokað fljótlega eftir fréttaflutning um mansalsgrun. Ekkert var hæft í þeim sögusögnum. Laun starfsmanna langt yfir lágmarkslaunum samkvæmt heimildum. Ákvörðun um hvort höfða eigi dómsmál tekin á næstu dögum. 19. september 2017 06:00 Ætlar að stefna Ríkisútvarpinu fyrir fréttaumfjöllun um Sjanghæ Að mati eigandans, Rositu YuFan Zhang, hefur fréttaflutningurinn haft alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir rekstur staðarins og andlega líðan hennar og fjölskyldu hennar. 25. september 2017 07:00 Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Eldgosinu lokið eftir 54 daga Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Erlent Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Fleiri fréttir Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ Sjá meira
Launin reyndust tæp hálf milljón á mánuði Sjanghæ var lokað fljótlega eftir fréttaflutning um mansalsgrun. Ekkert var hæft í þeim sögusögnum. Laun starfsmanna langt yfir lágmarkslaunum samkvæmt heimildum. Ákvörðun um hvort höfða eigi dómsmál tekin á næstu dögum. 19. september 2017 06:00
Ætlar að stefna Ríkisútvarpinu fyrir fréttaumfjöllun um Sjanghæ Að mati eigandans, Rositu YuFan Zhang, hefur fréttaflutningurinn haft alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir rekstur staðarins og andlega líðan hennar og fjölskyldu hennar. 25. september 2017 07:00