Innlent

Facebook bannar Ástþóri að aug­lýsa

Jón Þór Stefánsson skrifar
Ástþór Magnússon telur alvarlega stöðu komna upp fari Facebook að skipta sér af kosningum á Íslandi.
Ástþór Magnússon telur alvarlega stöðu komna upp fari Facebook að skipta sér af kosningum á Íslandi. Vísir/Vilhelm

Auglýsingareikningi Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda á Facebook hefur verið lokað. Síða hans er enn uppi, en auglýsingar hans eru ekki lengur í birtingu og hann getur ekki keypt fleiri auglýsingar. Einnig hefur Instagram-reikningi hans verið lokað.

Ástþór greinir frá þessu í samtali við fréttastofu. Hann segir þessar fregnir vera mikið áfall fyrir kosningabaráttu hans enda hefur miklum fjármunum verið varið í að auglýsa hann á Facebook.

Samkvæmt gögnum frá Meta, móðurfélagi Facebook og Instagram, hefur rúmum sex milljónum króna verið eytt í að auglýsa framboðssíðuna á samfélagsmiðlum.

„Það hefur verið talað um það að ég hafi auglýst mest af öllum, fyrir milljónir króna. Þannig þetta er auðvitað mikið áfall,“ segir Ástþór.

„Ástæðurnar sem okkur eru gefnar eru út í hött. Það er bara bullshit.“

Að sögn Ástþórs hefur hann ekki getað fengið svör frá Meta um það hvers vegna þessar ákvarðanir hafi verið teknar. „Þau segja bara að skipun hafi komið að ofan, og þau vita ekki ástæðuna.“

Alvarleg afskipti af íslenskum kosningum

Með þessu er alvarleg staða komin upp að sögn Ástþórs. Þarna séu Bandaríkin að skipta sér af kosningabaráttu á Íslandi.

„Það er mín skoðun að Bandarísk stjórnvöld eru að reyna að þagga niður framboðið því ég er að gagnrýna þessi vopnakaup. Það held ég að sé ástæðan,“ segir Ástþór sem fullyrðir að það liggi fyrir að mikil tengsl séu á milli Meta og bandarískra stjórnvalda. Facebook sé ekki óháð þeim þrátt fyrir að vera einkafyrirtæki.

„Það hefur verið mikil umræða um það hvernig Bandaríkin hafa verið að blanda sér í kosningar í öðrum löndum. Rússar og Kínverjar hafa verið vændir um að blanda sér í kosningar í Bandaríkjunum. Þarna sérðu hvernig Bandaríkin eru að blanda sér í kosningar á Íslandi.

Ástþór minnist á hugmynd sem hann hefur lagt til í kosningabaráttu sinni: Að stofnaður verði íslenskur samfélagsmiðill.

„Fjölmiðlarnir ættu bara að fara saman í átak með einkaaðilum, forritunarfyrirtækjum og gera þetta,“ segir hann. „Það þarf bara að kasta þessu fyrirtæki út á haf. Þetta kristallast nú fyrir framan augun á okkur hvernig þetta er að stýra umræðunni.“

Kosningabaráttan ónýt ef skellt er í lás og slá

Ekki er rukkað fyrir auglýsingarnar fyrir birtingu heldur jafnóðum, útskýrir Ástþór. Hann segist því ekki hafa borgað fyrir auglýsingar sem eiga eftir að birtast. Þrátt fyrir það segir hann áfallið fjárhagslegt að einhverju leiti.

„Þegar maður er búinn að leggja milljónir króna í að kynna framboðið, og svo er fótunum kippt svona undan manni þegar það er stutt í kosningar þá er verið að eyðileggja allt sem er búið að byggja upp,“ segir Ástþór.

„Ég er búinn að vera byggja upp ákveðinn takt. Kosningabaráttan er í raun ónýt ef það er lokað á þetta allt í einu.“


Tengdar fréttir

Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn

Ástþór Magnússon var í skýjunum með að fá númerið sjö þegar hann mætti til Hörpu í morgun að skila meðmælalistum framboðs síns. Verið væri að kjósa sjöunda forsetann og hann væri sannfærður um að ná kjöri.

Kveðst ekki svindla á neinum með happ­drætti sínu

Ástþór Magnússon segir happdrætti sitt þar sem rafbíll er í aðalvinning fara eftir öllum lögum og sé hann með leyfi frá sýslumanni til að reka það. Áttatíu þúsund miðar eru í boði og búið að útbýta tæplega fjögur hundruð þeirra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×