Innlent

Umhverfismál og menning mæta afgangi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Umhverfismálin eru ekki ofarlega í huga kjósenda.
Umhverfismálin eru ekki ofarlega í huga kjósenda. vísir/vilhelm
Heilbrigðismálin eru það málefni sem skiptir fólk mestu máli í kosningabaráttunni fram undan. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Rétt rúmlega þriðjungur, eða 37 prósent, þeirra sem afstöðu tóku nefndu heilbrigðismál. Næstflestir eða 12 prósent völdu efnahagsmál, 7 prósent málefni eldri borgara, 6 prósent nefndu menntamál og 4 prósent skattamál. Aðrir málaflokkar voru sjaldnar nefndir og til dæmis nefndu einungis 2 prósent svarenda umhverfismál og 1 prósent menningarmál.

Þegar svörin eru skoðuð eftir kynjum sést talsverður munur, því 44 prósent þeirra kvenna, sem afstöðu taka, nefna heilbrigðismálin en einungis 17 prósent karla. Hins vegar nefna 17 prósent karla sem afstöðu taka efnahagsmálin en einungis 6 prósent kvenna.

Heilbrigðismálin eru á meðal helstu bitbeina á Alþingi og hart var tekist á þegar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar var kynnt snemma í september og staðan varð forsætisráðherra að umræðuefni í stefnuræðu hans. „Það er sérstakt gleðiefni að nú stefni loks í að á vormánuðum verði tekin fyrsta skóflustungan að meðferðarkjarna nýs Landspítala,“ sagði Bjarni og bætti við að gera þyrfti gangskör að byggingu hjúkrunarheimila fyrir aldraða í framhaldinu.

En stjórnarandstaðan sakaði ríkisstjórnina um að svelta heilbrigðiskerfið. „Þeir sem þurfa mest á þjónustu ríkisins að halda, svo sem eins og sjúklingar, eiga ekki að njóta góðærisins,“ sagði Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Könnun Fréttablaðsins var gerð þannig að hringt var í 1.354 manns þar til náðist í 800 samkvæmt lagskiptu úrtaki 2. og 3. október. Svarhlutfallið var 59,1 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða málefni skiptir þig mestu máli i kosningabaráttunni fram undan? Alls tóku 80 prósent afstöðu til spurningarinnar, 17 prósent sögðust óákveðin en 3 prósent svöruðu ekki. 


Tengdar fréttir

Myndi gjörbreyta stöðunni á Alþingi

Ný skoðanakönnun bendir til þess að verulegar breytingar kunni að verða á þingstyrk flokka. Hvorki verður mynduð tveggja né þriggja flokka ríkisstjórn án aðkomu VG.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×