Gylfi lagði upp mark í jafntefli

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gylfi hefur farið rólega af stað með Everton.
Gylfi hefur farið rólega af stað með Everton. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp annað mark Everton í 2-2 jafntefli gegn Apollon í Evrópudeild UEFA í kvöld.

Sardinero Adrian kom Everton yfir á 12. mínútu en Wayne Rooney jafnaði fyrir heimamenn á 21. mínútu og jafnt var með liðunum í hálfleik.

Gylfi Þór gerði svo það sem hann gerir best, kom með einfalda sendingu sem kom Nikola Vlasic í færi og Króatinn kláraði boltann í netið á 66. mínútu.

Apollon þurfti að leika manni færri síðustu mínútur leiksins, en Valentin Roberge fékk beint rautt spjald á 87. mínútu fyrir að stíga á bakið á Dominic Calvert-Lewin.

Þrátt fyrir það náði Apollon að jafna leikinn með marki frá Hector Yuste á 88. mínútu.

Everton er nú komið með eitt stig í E-riðli, en liðið tapaði fyrsta leik sínum í riðlinum gegn Atalanta.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira