Innlent

Fjölskyldan þvertekur fyrir að um ástarsamband hafi verið að ræða

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Frá vettvangi á Hagamel fyrir viku.
Frá vettvangi á Hagamel fyrir viku. Vísir/KTD
Gæsluvarðhald yfir karlmanni á fertugsaldri, sem grunaður er um að hafa orðið lettneskri konu, Sanitu Braune, að bana í leiguíbúð hennar á Hagamel í síðustu viku, rennur út í dag.

Hann verður í dag leiddur fyrir dómara og mun lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum. Hann hefur nú setið í gæsluvarðhaldi í viku, bróðurpartinn í einangrun.

Að sögn Einars Guðbergs Jónssonar, lögreglufulltrúa, hefur maðurinn verið yfirheyrður nokkrum sinnum vegna málsins og að hann hafi verið samvinnuþýður. Lögreglan gefi þó ekki upp hvort játning liggi fyrir í málinu. Þá er ekki komin endanlega niðurstaða úr krufningu varðandi dánarorsök.

Maðurinn verður leiddur fyrir dómara í dag.Vísir/Anton
Vinir, kunningjar og samstarfsmenn sem fréttastofa ræddi við eftir kvöldið örlagaríka bera Sanitu allir vel söguna. Hún hafi verið góðhjörtuð, hjálpsöm og vinur vina sinna. Hún hefur verið á Íslandi í vel á annað ár og starfað við ræstingar á hótelum á Suðurlandi, Vesturlandi og nú síðast í Reykjavík.

Hún hafði lokið kennaraprófið og lærði á fiðlu. Fjárhagsörðugleikar urðu til þess að Sanita byrjaði að starfa erlendis og leiddi hana að lokum til Íslands, þar sem hún var myrt að kvöldi 21. september. Hún var 45 ára gömul og lét eftir sig þrjú börn og foreldra.

Sagður hafa veitt henni eftirför

Greint hefur verið frá því að hinn handtekni og Sanita hafi átt í stuttu persónulegu sambandi um tíma en að því hafi verið lokið þegar maðurinn réðst á hana. Þetta staðfesti til að mynda Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar hjá lögreglu, í samtali við Vísi.

Í samtali við DV vísa ættingar og vinir Sanitu því á bug að um ástarsamband hafi verið að ræða. Sanita og maðurinn hafi aðeins hist einu sinni, aðeins spjallað saman á netinu en aldrei sofið saman. Er hann sagður hafa verið „brjálaður“ vegna áhugaleysis hennar og er haft eftir eiginmanni dóttur Sanitu að maðurinn hafi oft veitt henni eftirför. 

Einar Guðberg segir hins vegar í samtali við DV að samband Sanitu og mannsins sé eitthvað sem lögreglan sé ekki „búin að ná utan um“ og ekki verði gefnar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Fjölmargir íbúar á Melunum urðu vitni að því þegar maðurinn var leiddur út úr húsinu í járnum fyrir viku síðan. Lét hann öllum illum látum og þurfti lögregla að beita piparúða til að hemja manninn. Hann var á nærfötunum einum fata og með blóð á líkama sínum. Í framhaldinu var annar maður leiddur af vettvangi en hann er nú laus úr haldi lögreglu.

Hér að neðan má sjá umfjöllun kvöldfrétta Stöðvar 2, kvöldið eftir árásina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×