Golf

Forsetapartý á Forsetabikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Forsetarnir þrír fyrir framan forsetabikarinn. Frá vinstri: Bill Clinton, George W. Bush og Barack Obama.
Forsetarnir þrír fyrir framan forsetabikarinn. Frá vinstri: Bill Clinton, George W. Bush og Barack Obama. Vísir/Getty
Tólfti Forsetabikarinn í golfi hófst í New Jersey í Bandaríkjunum gær en þar mætast úrvalslið Bandaríkjanna og alþjóðalið kylfinga utan Evrópu.

Keppnin er í anda Ryder-bikarsins þar sem Bandaríkin mætir Evrópu en Bandaríkjamenn eru nú á heimavelli í Forsetabikarnum í fyrsta sinn frá árinu 2013.

Steve Stricker er fyrirliði bandaríska liðsins en Simbabve-maðurinn Nick Price er fyrirliði heimsliðsins. Tiger Woods, Fred Couples, Davis Love og Jim Furyk eru aðstoðarmenn Stricker.

Bandaríska liðið hefur titil að verja en liðið vann 15,5-14,5 þegar Forsetabikarinn fór fram síðast árið 2015. Bandaríkjamenn hafa reyndar unnið Forsetabikarinn sex sinnum í röð.

Það vakti athygli að þegar menn í Liberty National gólfklúbbnum í Jersey City settu Forsetabikarinn í gær að þar voru þrír fyrrverandi forsetar mættir á svæðið og því sannkallað forsetapartý. Þetta er í fyrsta sinn sem þrír forsetar hafa verið meðal áhorfenda síðan að keppnin var sett á laggirnar árið 1994.



42. forseti Bandaríkjanna Bill Clinton (1993-2001), 43. forseti Bandaríkjanna George W. Bush (2002-2009) og 44. forseti Bandaríkjanna Barack Obama (2009-2017) voru á svæðinu en núverandi forseti, Donald Trump, var hvergi sjáanlegur.

Bill Clinton og George W. Bush eru báðir 71 árs gamlir en Barack Obama er 56 ára.

Tim Mickelson, bróðir bandaríska kylfingsins Phil Mickelson, hafði mjög gaman af þessu og náði að skella í eina „sjálfu“ með þremur forsetum.





Staðan eftir fyrsta dag er 3,5 - 1,5 fyrir bandaríska liðið en keppt var fimm fjórmenningum í gær.

Bandarísku pörin Justin Thomas/Rickie Fowler, Dustin Johnson/Matt Kuchar og Patrick Reed/Jordan Spieth unnu sína leiki en Branden Grace og Louis Oosthuizen unnu saman eina sigur alþjóðaliðsins. Jason Day/Marc Leishman urðu síðan að sættast á jafntefli á móti Phil Mickelson og Kevin Kisner.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×