Lífið

Heljarinnar partý í miðborginni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi skemmtu sér vel á Nóra.
Þessi skemmtu sér vel á Nóra.
Fjölmenni var á veitingastaðnum Nóra við Austurvöll í gærkvöldi þegar eigendur staðarins buðu vinum og velunnurum upp á hressandi tóna, góðan mat, drykki og skemmtilegan félagsskap.

Rapparinn Alexander Jarl frumflutti nýtt lag og DJ Jói B sá um að þeyta skífum og halda gestum á tánum.

Á meðal gesta voru Hafdís Huld, Sveinn Andri Sveinsson, Daddi diskó og Hrönn Óskarsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Árnasynir. Staðurinn hefur tekið miklum breytingum undanfarið og höfðu gestir á orði að þær breytingar hafi heppnast alveg þræl vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×