Viðskipti innlent

Skotsilfur Markaðarins: Stokkað upp í Samtökum iðnaðarins

Ritstjórn Markaðarins skrifar
Sigurður Hannesson var ekki lengi að láta til sín taka hjá Samtökum iðnaðarins (SI). Tæplega tveimur mánuðum eftir að Sigurður tók við starfi framkvæmdastjóra hefur hann hrundið af stað verulegum skipulags- og áherslubreytingum í starfsemi samtakanna. Allir sem til þekkja vita að þær voru nauðsynlegar – og þó fyrr hefði verið. Breytingar hafa orðið á starfsliði SI vegna þessa og talsvert af nýju fólki mun bætast við á næstunni í stað þeirra sem eru á útleið. Með þessu þykir Sigurður hafa sýnt að hann muni láta verkin tala og ekki veigra sér við að taka erfiðar ákvarðanir í því skyni að styrkja samtökin.

Minnka hlut sinn

Litlar breytingar urðu á hluthafahópi Kviku eftir að hlutafé bankans var aukið um daginn. Eignarhaldsfélagið Brimgarðar, sem er í eigu Guðnýjar, Eggerts, Halldórs og Gunnars Þórs Gíslabarna, minnkaði hlut sinn í bankanum úr 5 í 4,12 prósent, en fyrr í sumar seldi félagið 3,3 prósenta hlut til Hjörleifs Jakobssonar, fjárfestis og fyrrverandi stjórnarmanns í Kaupþingi. Þá bætti VÍS lítillega við hlut sinn í bankanum og á nú 25,11 prósenta hlut og er sem fyrr stærsti hluthafi Kviku. Eftirlitsstjórnvöld lögðu nýverið blessun sína yfir kaup Kviku á Virðingu.



Steve Pappas, aðstoðarforstjóri Costco í Evrópu.
Ekki norður

Steve Pappas, aðstoðarforstjóri Costco í Evrópu, þvertók fyrir það á fjármálaþingi Íslandsbanka í gær að heildsölurisinn hefði hug á því að opna verslun á Akureyri. Þrálátur orðrómur hefur verið uppi síðustu vikur um að Costco sé að íhuga að opna verslun nyrðra og var Pappas sérstaklega spurður út í þennan orðróm. Hann tók fram að markaðurinn á Akureyri væri afar smár í sniðum og eins og sakir stæðu væru afar litlar líkur á því að Costco legði leið sína þangað. Fyrirtækið myndi frekar skoða aðrar leiðir til þess að koma vörum sínum til Akureyrar.

Skotsilfrið er óvægin innsýn inn í bakherbergi viðskipta og atvinnulífs á landinu. Pistillinn birtist í Markaðnum í Fréttablaðinu á miðvikudögum.

 












Fleiri fréttir

Sjá meira


×