Viðskipti innlent

Lyf og heilsa kaupir glerverksmiðju

Samúel Karl Ólason skrifar
Samverk er stærsti framleiðandi glers á Íslandi og jafnframt elsta starfandi glerfyrirtæki landsins, en það var stofnað árið 1969.
Samverk er stærsti framleiðandi glers á Íslandi og jafnframt elsta starfandi glerfyrirtæki landsins, en það var stofnað árið 1969.
Forsvarsmenn Lyfja og heilsu hafa undirritað samning um kaup á 90 prósenta hlut í Glerverksmiðjunni Samverki á Hellu. Samverk er stærsti framleiðandi glers á Íslandi og jafnframt elsta starfandi glerfyrirtæki landsins, en það var stofnað árið 1969. Seljendur eru meðal annarra Ragnar Pálsson, framkvæmdastjóri og aðaleigandi félagsins.

„Það var kominn tími á breytingar og ég er mjög ánægður með þennan samning“, segir Ragnar Pálsson í tilkynningu. „Sérstaklega er ég ánægður með það að þessi rekstur, sem skiptir miklu máli fyrir lífið hér á Hellu, verður áfram hér á Hellu.“

Arnar Guðmundsson, stjórnarformaður Lyfja og heilsu, segir mikla ánægju með kaupin ríkja í sínum búðum.

„Sérsvið okkar hefur vissulega legið í heilsu- og heilbrigðisgeiranum, en við erum líka fjárfestingafyrirtæki og fjárfestum í fyrirtækjum til langs tíma. Þarna var rótgróið fyrirtæki til sölu og við sjáum mikil tækifæri á glermarkaðnum. Tækifærin liggja ekki síst í því að Samverk er fyrirtæki sem býður fjölmargar flottar glerlausnir,“ segir Arnar.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×