Innlent

Maðurinn sem stökk í Ölfusá enn á gjörgæslu

Birgir Olgeirsson skrifar
Maður liggur enn á gjörgæslu Landspítalans.
Maður liggur enn á gjörgæslu Landspítalans. Vísir/Vilhelm
Maðurinn sem stökk í Ölfusá á miðvikudag í síðustu viku liggur enn á gjörgæslu. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins en hún mun ekki ræða við manninn á meðan hann er á gjörgæslu.

Það var síðastliðið miðvikudagskvöld sem maður ók bifreið á brúarhandrið vestanverðrar Ölfusárbrúar.

Hann hljóp úr bílnum og stökk svo í ána. Viðbragðsaðilar á Selfossi náðu manninum úr ánni skömmu síðar.

Hann var án meðvitundar þegar björgunarmenn komu að honum en andaði sjálfur eftir endurlífgunartilraunir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×