Golf

Leik frestað hjá Ólafíu | Spilar bara nokkrar holur í dag

Þorsteinn Hallgrímsson skrifar
Frá mótinu í morgun.
Frá mótinu í morgun. Mynd/Friðrik Þór
Ákveðið hefur verið að fresta keppni vegna veðurs á Evian Championship-mótinu í golfi sem fer fram í Frakklandi. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er á meðal keppenda og átti að hefja leik klukkan 11.09.

Öllum rástímum síðdegis hefur verið frestað um fjórar klukkustundir miðað við upplýsingar á heimasíðu mótsins. Þeir sem höfðu spilað mest áður en leik var frestað höfðu lokið átta holum. Ólafía mun því ekki hefja leik fyrr en 17.09 og ljóst að hún nær ekki að spila allan hringinn sinn í dag.

Veðrið í norður Frakklandi eða nánar tiltekið í Evian-les-Baines er ekki það besta til golfleiks. Þar er rignir og vindur um 7 m/s og því aðstæður mjög krefjandi.

Völlurinn er orðin mjög blautur og má sjá polla víða einnig eru auglýsingaskilti farin að hugsa sér til hreyfings og höfum við séð nokkur sem hafa lagst á hliðina undan vindinum.

Óhætt er að segja að Sung Hyun Park sem sigraði á US Open mótinu í sumar hafi ekki átt góða byrjun hér í rigningunni og rokinu á Evian vellinum. Park hóf leik á 10. teig og er hún á 6 höggum yfir pari eftir 5 brautir þrátt fyrir að vera búin að fá tvo fugla.

Þegar leikur var stöðvaður voru þær Jessica Korda og So Yeon Ryu í forystu á tveimur höggum undir pari.

Uppfært 11.25: Leik hefur verið frestað um fimm og hálfa klukkustund. Ólafía á samkvæmt því rástíma klukkan 18.39. Líklegt er að hægt verði að spila til um klukkan 20.00 í kvöld.

Vísir/Friðrik Þór



Fleiri fréttir

Sjá meira


×