Jafnt hjá Liverpool og Burnley á Anfield | Sjáðu mörkin

Dagur Lárusson skrifar
Liverpool og Burnley mættust á Anfield í ensku úrvaldsdeildinni í dag en Liverpool tapaði stórt í síðustu umferð fyrir Manchester City.

Jóhann Berg var í byrjunarliði Burnley en það voru einmitt gestirnir sem náðu forystunni í þessum leik en það var Scott Arfield sem kom þeim yfir á 27. mínútu.

Heimamenn voru hinsvegar ekki lengi að jafna metin en það var Mohamed Salah sem að gerði það aðeins þremur mínútum seinna eftir flotta sendingu frá Coutinho og var staðan 1-1 í hálfleik.

Liverpool sóttu og sóttu í seinni hálfleiknum en inn vildi boltinn ekki og var jafntefli því niðurstaðan.

Eftir leikinn situr Liverpool í 7.sæti með 8 stig á meðan að Burnley er einu sæti ofar með jafn mörg stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira