Spurs skaut eintómum púðurskotum á Wembley

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tottenham og Swansea City gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Tottenham 75% með boltann og sótti án afláts. Liðið átti 26 skot á móti aðeins fjórum en inn vildi boltinn ekki.

Tottenham bíður því enn eftir fyrsta deildarsigrinum á Wembley. Spurs hefur aðeins uppskorið tvö stig úr fyrstu þremur heimaleikjunum í ensku úrvalsdeildinni.

Spurs er í 8. sæti deildarinnar með átta stig á meðan Swansea er í 14. sætinu með fimm stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira