Handbolti

Rúnar og félagar enn ósigraðir á toppnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar skoraði tvö mörk.
Rúnar skoraði tvö mörk. vísir/epa
Hannover-Burgdorf er enn með fullt hús stiga í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir 32-30 sigur á Magdeburg í dag.

Rúnar Kárason skoraði tvö mörk fyrir Hannover sem tryggði sér sigurinn með því að vinna síðustu 10 mínútur leiksins 6-2.

Hannover er með 10 stig á toppi deildarinnar. Liðið hefur unnið alla fimm leiki sína.

Lærisveinar Aðalsteins Eyjólfssonar í Hüttenberg bíða enn eftir sínum fyrsta sigri í þýsku deildinni. Í dag laut Hüttenberg í lægra haldi fyrir Füchse Berlin, 28-30.

Ragnar Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir Hüttenberg sem er með eitt stig í sautjánda og næstneðsta sæti deildarinnar.

Bjarki Már Elísson er enn frá vegna meiðsla hjá Füchse Berlin sem er í 7. sæti með sex stig. Liðið hefur unnið alla þrjá leiki sína á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×