Golf

Ólafía fljót að rétta sig af og komst í gegnum niðurskurðinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía er samtals á tveimur höggum undir pari.
Ólafía er samtals á tveimur höggum undir pari. vísir/ernir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst í gegnum niðurskurðinn á Cambia Portland Classic-mótinu sem er hluti af LPGA-mótaröðinni. Mótið fer fram í Portland, Oregon.

Ólafía lék fyrsta hringinn á tveimur höggum undir pari. En hún fór illa af stað í dag og fékk skramba á 4. holu.

Ólafía rétti sig hins vegar strax af með þremur fuglum í röð.

Hún lék hringinn í dag á pari vallarins og er því samtals á tveimur höggum undir pari.

Keppni á Cambia Portland Classic-mótinu heldur áfram á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×