Golf

Birgir Leifur með 7 högga forystu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Birgir Leifur er að spila vel
Birgir Leifur er að spila vel mynd/gsí
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, leiðir keppni á Opna Cordon-mótinu í golfi sem fram fer í Frakklandi. Mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.

Birgir lék hringinn í dag sex höggum undir pari og er samtals á 18 höggum undir pari. Fyrir lokahringinn, sem leikinn er á morgun, er Birgir Leifur með sjö högga forystu.

Birgir fékk einn örn í dag ásamt því að leika fyrir sjö fuglum. Hann fékk einnig þrjá skolla og fór hinar sex holurnar á pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×