Golf

Birgir Leifur: Virkilega gott pútt skilaði sigrinum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Birgir Leifur mundar pútterinn.
Birgir Leifur mundar pútterinn. vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, varð í dag fyrstur Íslendinga til að vinna mót á Áskorendamótaröð Evrópu.

Sjá einnig: Fyrsti sigur Birgis á atvinnumóti erlendis

Kjartan Atli Kjartansson heyrði í Birgi hljóðið fyrr í dag og fór yfir mótið með honum og hvað það var sem skilaði sigrinum.

„Oft hefur vantað að pútta vel, ég hef oft verið góður að pútta stundum og næsti dagur ekki nógu góður, vantaði oft að halda það út. Ég virkilega púttaði vel núna, þannig að það var það sem skóp þennan sigur,“ sagði Birgir Leifur.

„Ég hef oft verið góður í langa spilinu og það hefur haldið sér. Það hélt sér núna og skilar sér í svona frábærum árangri og gefur manni aukið sjálfstraust fyrir framhaldið.“



 

Birgir hefur áður spilað á Áskorendamótaröðinni en þá ekki náð eins góðum árangri og í ár. Birgir segist hafa lagt allt undir í ár og það hafi skilað sér.

„Ég lagði mikið púður í árið, að koma mér á beinu brautina. Lagði meiri áherslu á að vera meira í golfi og elta allar keppnir sem ég komst inn í og undirbúningstímabilið var miklu strangara hjá mér en síðustu ár vegna þess að ég var þá meira í vinnu og annað. Tók smá áhættu í ár og hún er sannarlega að ganga upp.“

„Byrjaði með krafti og með látum og stóð mig vel í fyrstu mótunum. Svo kom smá hiksti í miðbikið vegna þess að það var mikil törn í byrjun. Svo ætlaði ég að vera í toppformi í haust og það er virkilega að ganga vel núna þannig að planið allt er að ganga upp. Hrikalega ánægður með að það skili sér í sigri núna og hleypi manni svona hátt upp töfluna. Gaman að því þó svo maður sé enn bara 41 árs og geti virkilega sýnt sínar bestu hliðar,“ bætti Birgir við.

Hringurinn í gær var einstaklega góður hjá Birgi og var hann með sjö högga forystu fyrir lokahringinn í dag. Birgir lagði þó aldrei af stað út í brautina í dag því hætt var við leik vegna veðurs.







„Þriðji hringurinn er alltaf crucial í þessum mótum. Hann hefur oft strítt en stundum verið góður,“ sagði Birgir og bætti við: „Í þessari stöðu þá hefur hann frekar strítt mér svo þetta var virkilega persónulegur sigur hjá mér í gær. Ég náði að læra af reynslunni, hvernig mér leið og hvað ég þurfti að gera til að láta mér líða aðeins betur. Heimavinnan skilaði því í hús.“

Góður árangur á Áskorendamótaröðinni er lykillinn að því að komast á sjálfa Evrópumótaröðina og er Birgir nú í góðri stöðu með að komast aftur þangað, en Birgir lék á mótaröðinni árin 2007-2009.

„Topp 20 fá kortið, en topp 15 fá betri ranking, þannig að jú ég set það náttúrulega sem markmið núna [að komast í topp 15]. Þetta er svo fljótt að breytast. Ég var ekki með góða stöðu [í upphafi árs] og gat ekki valið mér mót, svo ég þurfti að detta inn og út á síðustu stundu, svo markmiðið mitt fyrir ári var að lenda í topp 70. Þetta breytir öllu og setur þetta á allt annað level. Ég fæ núna stóru mótin í lok árs þannig að ég þarf að setjast aðeins niður og skipuleggja lok tímabilsins. Ég er gríðarlega spenntur fyrir þessu, þetta er svo stutt á milli í þessu og þetta breytir öllu.“

„Ég held þetta sé lang jafnasta golf sem ég hef leikið á ferlinum og bara lang besta golfið sem ég hef leikið, það er ekki spurning. Það eru fleiri sem koma að málunum og hafa hjálpað mér í gegnum tíðina og þetta er allt að skila sér. Þetta er sigur okkar sem komu að þessu, fjölskyldunnar og annara,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson.


Tengdar fréttir

Birgir Leifur með 7 högga forystu

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, leiðir keppni á Opna Cordon-mótinu í golfi sem fram fer í Frakklandi

Fyrsti sigur Birgis á atvinnumóti erlendis

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, stóð uppi sem sigurvegari á Opna Cordon-mótinu sem fór fram í Frakklandi. Mótið var hluti af Áskorendamótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×