Viðskipti innlent

Elísabet G. Björnsdóttir ráðin til Landsbankans

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Elísabet er með próf í byggingarfræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf í fjármálaverkfræði frá Cornell-háskóla.
Elísabet er með próf í byggingarfræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf í fjármálaverkfræði frá Cornell-háskóla.
Elísabet G. Björnsdóttir, fjármálaverkfræðingur, hefur hafið störf hjá Fjárstýringu Landsbankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Elísabet hefur frá árinu 2008 unnið hjá J.P. Morgan í New York og London. Hún lauk B.Sc.-prófi í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 og hlaut Fulbright-styrk og Thor Thors-styrk  til framhaldsnáms í Bandaríkjunum. Lauk hún meistaraprófi í fjármálaverkfræði frá Cornell-háskóla árið 2008.

 

„Elísabet vann hjá verkfræðistofunni Línuhönnun veturinn 2006-2007 og hjá Kaupþingi sumarið 2007. Hún hóf störf hjá J.P. Morgan í New York árið 2008 í deild sem sér um að lágmarka mótaðilaáhættu bankans. Rúmu ári síðar flutti hún sig yfir til J.P. Morgan í London þar sem hún hefur að undanförnu stýrt veltubók með skuldatryggingar og sambankalán,“ segir í tilkynningu Landsbankans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×