Lífið

Linda Pé í fullu námi með vinnu og 230 þúsund fylgjendur

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hvernig er daglegt líf fegurðardrottningar og hvað er eiginlega í heimsfræga heilsudrykknum hennar? Því fékk Vala Matt að kynnast á dögunum þegar hún heimsótti Lindu Péturdóttur á heimili hennar og dótturinnar Ísabellu.

Þar leiddi Linda sjónvarpsvélar Ísland í dag í gegnum hina ýmsu kima heimilis hennar. Farið var í gegnum fataskápinn þar sem finna má fjölbreytt úrval; allt frá hversdagslegum peysum og leggings til kimono-kjóla fyrir öll tækifæri. Þá voru galakjólarnir ekki langt undan en Linda segir að þessir gylltu „og smá sexy“ séu í miklu uppáhaldi.

Hún segist alla jafna mála sig lítið en getur þó aldrei verið án augnhárabrettarans og augnblýantsins. Þá eru síminn, veskið og handáburður aldrei langt undan.

Með á þriðja hundrað þúsund fylgjendur

Þá leiddi hún Völu og áhorfendur í allan sannleikann um hinn víðfræga græna heilsudrykk sem hún mallar á hverjum degi. Agúrkur, sítrónur og lárperur koma meðal annars við sögu.

Þessa dagana er Linda að vinna að háskólagráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði sem hún segir vera eins og fulla vinnu. Meðfram náminu vinnur hún einnig að heimasíðunni sinni, lindap.is, sem þúsundir heimsækja í hverjum mánuði. Hún er til að mynda með meira en 230 þúsund fylgjendur, hvaðanæva að, á samfélagsmiðlum.

Þá skrifar hún jafnframt í dagbók á hverjum morgni og gefur sér nokkrar mínútur til að hugleiða. Innlitið til Lindu P. má sjá í spilaranum hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×