Erlent

Irma nú fjórða stigs fellibylur

Atli Ísleifsson skrifar
Rauði krossinn óttast að sjúkdómar kunni að breiðast út á svæðum þar sem vatnshreinsunarstöðvar hafa eyðilagst.
Rauði krossinn óttast að sjúkdómar kunni að breiðast út á svæðum þar sem vatnshreinsunarstöðvar hafa eyðilagst. Vísir/AFP
Irma hefur misst nokkurn styrk og er nú flokkuð sem fjórða stigs fellibylur. Fellibylurinn gengur nú yfir hafsvæði norður af austurhluta Kúbu og stefnir á Flórída.

Tilkynnt hefur verið um mikla eyðileggingu á nokkrum eyjum í Karíbahafi. Staðfest er að fjórtán manns hafa látið lífið í hamförunum, flestir á eyjunni Sankti Martin.

Fellibylurinn hefur herjað á íbúa Turks- og Caicoseyja síðustu klukkustundirnar, en umfang eyðileggingar þar liggur enn ekki fyrir.

Yfirvöld á Flórída hafa beint þeim fyrirmælum til 500 þúsund íbúa á skaganum að yfirgefa heimili sín, en von er á Irmu þangað á sunnudag. Þrátt fyrir að Irma sé nú flokkuð sem fjórða stigs fellibylur þá sé hún enn talin „gríðarlega hættuleg“.

Þannig sé búist við að öflugustu vindhviðurnar kunni að verða allt að 75 metrar á sekúndu.

Rauði krossinn óttast að sjúkdómar kunni að breiðast út á svæðum þar sem vatnshreinsunarstöðvar hafa eyðilagst í Karíbahafi.


Tengdar fréttir

Irma ógnar allt að 26 milljónum manna

Fimmta stigs fellibylur veldur gífurlegu tjóni á eyjum Karíbahafs. Barbúda er sögð óbyggileg og Saint-Martin næstum öll í rúst. Bandaríkjamenn búa sig undir komu Irmu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×