Viðskipti erlent

Bylting Amazon fyrir kennara komin á markað

Sæunn Gísladóttir skrifar
Úr vöruhúsi Amazon í Bretlandi.
Úr vöruhúsi Amazon í Bretlandi. Vísir/Getty
Í liðinni viku tilkynntu forsvarsmenn netverslunarrisans Amazon útgáfu nýs tóls fyrir kennara sem auðveldar þeim að þróa kennsluáætlanir fyrir grunnskólanema.

CNN greinir frá því að tólið sem nefnist TenMarks Writing sé fyrir kennara í fjórða til sjötta bekk en áform eru um að útvíkka hópinn sem getur nýtt sér tólið á næstunni. Tólið býður meðal annars upp á ritæfingar, kennsluáætlanir og verkefni fyrir nemendur.

Kostnaður við tólið er fjórir dollarar, rúmlega fjögur hundruð krónur, á hvern nemanda á ári.

Amazon keypti fyrirtækið TenMarks árið 2013 og er talið að forsvarsmenn fyrirtækisins vilji herja á menntakerfið með nýjungum sem þessum. Meðal annars í ljósi þess hve margir skólar nýta nú tölvur, spjaldtölvur og aðra tölvutækni. Amazon hefur verið í mikilli sókn á árinu en gengi hlutabréfa í fyrirtækinu hefur hækkað um 27 prósent á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×