Lífið

Kom fram á uppistandi á sveppatrippi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frekar steiktur gaur.
Frekar steiktur gaur.
Mike Masilotti tók þátt í nokkuð sérstöku uppistandi í Seattle í maí og kallast uppistandið The Gateway Show.

Fyrirkomulagið er þannig að þú mætir og ferð með uppistand. Síðan tekur maður smá pásu, fer afsíðis og kemur sér í vímu.

Þá áttu að mæta aftur á sviðið og sjá hvernig gengur að fá fólk til að hlæja í vímu.

Masilotti mætti á ný á sviðið eftir að hafa fengið sér nokkra sveppi og var í töluverði vímu eins og sjá má hér að neðan. Umrætt myndband er eitt það vinsælasta á Reddit í vikunni.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×