Komu í veg fyrir að þota yrði sprengd upp með Barbie-dúkkum Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. ágúst 2017 07:27 Ástralska lögreglan gerði mikla rassíu í lok júlí gegn einstaklingum sem grunaðir eru um tengsl við hryðjuverkasamtök. Vísir/Getty
Leyniþjónustu Líbanons kom í veg fyrir að hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki tækist að granda flugvél með sprengjum földum í Barbie-dúkkum og kjötvinnsluvél í júlí síðastliðnum. Þetta kom fram í máli innanríkisráðherra Líbanons, Nouhad Machnouk, sem sagði leyniþjónustu landsins hafi hindrað það að sprengjurnar rötuðu um borð í vélina. Maðurinn sem flutti sprengjurnar hafi verið handtekinn á flugvellinum í Beirút, höfuðborg Líbanons, við komuna frá Ástralíu en vélin sem hann hugðist sprengja flaug frá Sydney til Abu Dhabi, höfuðborgar Sameinuðu arabísku furstadæmanna (SAF). Hann hafði í hyggju að sprengja vélina 20 mínútum eftir flugtak og hafði hann komið sprengjuefnunum fyrir í farangri sínum. Hann hafi upphaflega ætlað að taka þau með sér í handfarangri en var beðinn um að innrita töskuna sína því hún reyndist um 7 kílóum þyngri en leyfilegt er. Það er talið hafa riðið baggamuninn. Innanríkisráðherra Líbanons segir fjóra menn hafa verið handtekna í tengslum við málið, allir með ástralskt og líbanskt ríkisfang. Einn þeirra er sagður hafa starfað fyrir Íslamska ríkið í Sýrlandi. Ekki hefur greint frá því á vegum hvaða flugfélags flugið var en Emirates Airlines, þjóðarflugfélag SAF, hefur sagst taka þátt í rannsókninni. Um 400 farþegar voru í vélinni, þar af voru 120 Líbanir. Innanríkisráðherra segir mennina fjóra hafa ætlað að refsa SAF og Ástralíu fyrir þátttöku sína í loftárásum á Íslamska ríkið í Írak og Sýrlandi.
Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Innlent Fleiri fréttir Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Sjá meira