Viðskipti innlent

Sjóvá hagnast um 1,8 milljarða

Sæunn Gísladóttir skrifar
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, telur afar brýnt að ná betri tökum á þeirri tjónaþróun sem verið hefur í umferðinni.
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, telur afar brýnt að ná betri tökum á þeirri tjónaþróun sem verið hefur í umferðinni. Vísir/Daníel
Á fyrstu sex mánuðum ársins hagnaðist tryggingafélagið Sjóvá um 1.803 milljónir króna. Hagnaður á öðrum ársfjórðungi nam 702 milljónum króna að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Hagnaðurinn jókst umtalsvert milli ára en á sama tímabili í fyrra nam hann 709 milljónum króna.

Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta nam 250 milljónum króna. Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta nam 539 milljónum króna. Ávöxtun eignasafns félagsins var 2,5 prósent.

„Afkoma Sjóvár á öðrum ársfjórðungi er í takt við það sem búast mátti við og það sama má segja um afkomuna fyrstu sex mánuði ársins. Eins og oft áður er það fjárfestingarstarfsemin sem myndar stærsta hluta heildarafkomunnar. Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að bæta afkomu vátryggingastarfseminnar. Þess sjást merki í afkomu annars ársfjórðungs sem var mun betri en fyrir ári þrátt fyrir einstök stærri stór tjón það sem af er árinu. Fyrir fyrstu sex mánuði ársins hefur vöxtur eigin iðgjalda verið meiri en vöxtur eigin tjóna,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár í tilkynningu.

„Við teljum afar brýnt að ná betri tökum á þeirri tjónaþróun sem verið hefur í umferðinni þar sem hvert tjón getur valdið óbætanlegum skaða og kostnaður numið tugum milljóna. Sjóvá er þátttakandi í verkefninu Höldum fókus sem snýst um að vekja athygli á mikilli og almennri símnotkun við akstur og afleiðingum hennar með það að markmiði að draga úr slysum. Það er til mikils að vinna fyrir okkur sem samfélag að breyta þeirri hegðun til hins betra.“ segir Hermann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×