Innlent

Yfirsjón lækna því miður ekki einsdæmi

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, segir það ekki einsdæmi að læknar greini ekki heilablóðfall í sjúklingum. Hann lenti sjálfur í því.
Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, segir það ekki einsdæmi að læknar greini ekki heilablóðfall í sjúklingum. Hann lenti sjálfur í því. vísir/eyþór
„Þetta er því miður ekki einsdæmi, það hefur komið fyrir að þótt fólk sé með þessi einkenni hafi það fengið afgreiðslu um að bíða eða sjá daginn eftir hvernig líðanin er.

Sem má alls ekki því þetta er bráðameðferð,“ segir Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, aðspurður um frásögn Fréttablaðsins í gær um konu sem læknum yfirsást að væri með heilablóðfall eftir að hún hafði verið flutt á bráðamóttöku. Var hún greind með þvagfærasýkingu og send heim með sýklalyf.

Þórir segir að frásagnir af vangreindum einkennum slags hafi komið upp á fundum Heilaheilla en félagið berst fyrir aukinni vitundarvakningu almennings um einkenni heilablóðfalls og hefur meðal annars gefið út smáforritið SLAG sem nálgast má frítt í alla snjallsíma. Að meðaltali fá á hverjum degi tæplega tveir Íslendingar heilablóðfall.

Þórir segir ljóst af frásögn eiginmanns konunnar í Fréttablaðinu í gær að konan hafi verið með eitt af höfuðeinkennum slags þegar hún var flutt á bráðamóttökuna, lömun í annarri hlið líkamans.

Þó að birtingarform einkenna geti verið mismunandi eftir einstaklingum þá er ljóst að yfirsjón eða mistök við greiningu og meðhöndlun getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.

„Sjálfur fór ég til heimilislæknis með einkenni slags. Þau voru svimi, ógleði og ég var valtur. Svo fór að ég var afgreiddur þannig út að ég þyrfti að fara í jafnvægismælingu. Daginn eftir fékk ég slag.“ Þórir kveðst skilja stöðu heilbrigðisstarfsfólks sem starfi undir miklu álagi.

„Þetta getur verið mjög lúmskt, en sjúklingurinn á alltaf að njóta vafans. Hver sekúnda skiptir máli í þessum veikindum.“


Tengdar fréttir

Eiginkonan send heim strax eftir heilablóðfall

Kona var flutt veik og lömuð í annarri hlið líkamans á bráðamóttöku Landspítalans í lok júlí. Læknar sögðu að um þvagfærasýkingu væri að ræða og sendu hana heim með sýklalyf. Konan reyndist vera með blóðtappa.

Auka þurfi þekkingu á heilablóðfalli

Heilablóðföll eru oft illgreinanlegt en hægt er að bæta úr því með aukinni fræðslu og umræðu, segir Björn Logi Þórarinsson, taugasérfræðingur á taugadeild Landspítalans. Einkenni heilablóðfalls svipi oft til annarra sjúkdóma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×