Móðir Oddrúnar framdi sjálfsvíg á geðdeild: „Ellefu ár eru liðin en ekkert hefur breyst“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 15. ágúst 2017 13:45 Oddrún segir fréttir síðustu daga vekja upp slæmar minningar
Oddrún Lára Friðgeirsdóttir sendi landlæknisembættinu póst og bað um svör eftir að móðir hennar framdi sjálfsvíg á geðdeild Landsspítalans. Hún fékk aldrei svörin sem hún óskaði eftir. Í opinni færslu á Facebook segir Oddrún að fréttir um ungan mann sem svipti sig lífi á sjálfsvígsvakt inni á geðdeild Landsspítalans hafi vakið upp slæmar minningar. Ellefu ár séu liðin en ekkert hafi breyst. „12. maí 2006 fór mamma upp á geðdeild. Hún óttaðist um eigið líf í eigin höndum og fór á eina staðinn sem býður upp á aðstoð fyrir andlega veika. Þar var hún lögð inn og sett á sjálfsvígsvakt. Sjálfsvígsvakt virkar þannig að athuga á með manneskjuna á 15 mínútna fresti. Um miðnætti sólarhring eftir að hún mætti var síðasta innlitið til hennar. Tveimur tímum síðar fannst hún látin, 14. maí.“Liðu tvær klukkustundir Oddrún furðar sig á því að það hafi liðið tvær klukkustundir án þess að einhver hafi litið inn til hennar. „Af hverju beltið hennar var ekki tekið af henni veit ég ekki. Eina sem ég veit er að þetta átti ekki að gerast þarna.“ Í einlægum pistli á Pressunni skrifaði Oddrún um daginn sem hún vaknaði við orðin „Mamma þín dó í nótt.“ Hún lýsir móður sinni sem fallegri, góðri, fyndinni og umhyggjusamri. „Hún var einstæð móðir með mig og stóru systur mínar tvær. Hún kenndi mér svo margt og elskaði mig mikið. Á hverju einasta kvöldi kyssti ég hana og sagðist elska hana og hún mig.“Geðdeild Landspítalans.Með jaðarpersónuleikaröskun, þunglyndi og kvíða Móðir Oddrúnar þjáðist af jaðarpersónuleikaröskun, auk þunglyndis og kvíða. „Á síðustu árunum var hún inn og útaf geðdeild og í iðjuþjálfun. Nokkrum sinnum hafði hún reynt sjálfsvíg. Aðfararnótt mæðradagsins 2006 náði sjúkdómurinn loksins yfirhöndinni og hún endaði sitt líf,“ skrifaði Oddrún í pistli sínum á Pressunni. „Ég hef oft verið spurð hvort ég sé reið útí mömmu. Reið af því að hún ákvað að fara frá okkur. Og heyri oft að sjálfsvíg sé sjálfselska. Alltaf verð ég jafnhissa að heyra þetta. Þessa nótt tók hún ekki þá sjálfselsku, meðvituðu ákvörðun um að yfirgefa börnin sín. Hennar veikindi, vanlíðan, hennar sjúkdómur varð þess valdandi að hún dó. Hennar mein sást ekki utan á henni og því á sumt fólk enn erfitt með að skilja hvernig það getur dregið manneskju til dauða.“Undirmönnuð og plásslítil Færsla Oddrúnar á Facebook hefur fengið mikil viðbrögð og hundruð deilinga síðan í gær „Foreldrar okkar, börnin okkar, systkini okkar, frænkur og frændur, vinir og nágrannar deyja, mörg á ári, vegna þess að geðdeildin er undirmönnuð og plásslítil. Verkferlar ekki nógu góðir og svo ef eitthvað gerist inni á stofnunum er það oft þaggað niður. Algert úrræðaleysi ríkir hjá fólki því þeim er vísað frá. Sumum sagt að koma aftur seinna. En stundum er ekkert seinna. Manni ber skylda að stoppa hjá slysi og aðstoða. Manneskju sem er að blæða út er ekki vísað frá inni á bráðamóttöku“ skrifar Oddrún á Facebook. Oddrún spyr hvort við séum ekki að bregðast fólki sem þarf aðstoð. „Þurfum við ekki að vera brjáluð og krefjast úrbóta og úrræða? Áður en næsta manneskja deyr. Erum við ekki bara búin að fá nóg? Ég er það allavega.“
Tengdar fréttir Landspítali mun rannsaka sjálfsvíg Af hálfu Landspítalans mun fara fram ítarleg skoðun á atvikum málsins þegar ungur maður svipti sig lífi á geðdeild Landspítala aðfaranótt 11. ágúst. 14. ágúst 2017 17:24 „Það kemur því miður ekki á óvart að svona gerist“ Formaður Hugarafls segir sjálfsvíg ungs manns inni á geðdeild til marks um hve mikið álag sé á spítalanum og í geðheilbrigðiskerfinu. 14. ágúst 2017 13:30 Mest lesið Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi Innlent Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Erlent Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Innlent Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Innlent Fleiri fréttir Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Fækka þeim tilvikum þar sem skrifa þarf tilvísanir fyrir börn Stefnt að því að ljúka samningaviðræðum um Ölfusárbrú nú í maí Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni Sjá meira
Landspítali mun rannsaka sjálfsvíg Af hálfu Landspítalans mun fara fram ítarleg skoðun á atvikum málsins þegar ungur maður svipti sig lífi á geðdeild Landspítala aðfaranótt 11. ágúst. 14. ágúst 2017 17:24
„Það kemur því miður ekki á óvart að svona gerist“ Formaður Hugarafls segir sjálfsvíg ungs manns inni á geðdeild til marks um hve mikið álag sé á spítalanum og í geðheilbrigðiskerfinu. 14. ágúst 2017 13:30