Leikari í Game of Thrones hvetur fólk til að kaupa ekki husky hund í bríaríi Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 16. ágúst 2017 10:34 Peter Dinklage segir mikla vinnu felast í því að eiga hund. Þá talar hann jafnframt fyrir hönd PETA samtakanna sem hafa tjáð áhyggjur sínar vegna málsins. Vísir/AFP
Husky hundar, eða sleðahundar, hafa verið vinsæl gæludýr um heim allan undanfarin ár þá sér í lagi hjá aðdáendum þáttanna Game of Thrones. Í þáttunum koma fyrir úlfar sem leika lykilhlutverk í þáttunum. Peter Dinklage, einn af aðalstjörnum þáttanna, varar þó aðdáendur við að fjárfesta í husky hundum en þess lags hundar eru taldir vera hvað líkastir úlfunum í GOT. Segir hann að fólk verði að gera sér grein fyrir því að mikil vinna fylgi því að eiga slíkan hund. Dinklage segir að margir þessara hunda, sem urðu vinsælir vegna tískubylgjunnar í kringum þættina, séu vanræktir og að eigendur þeirra gefist fljótt upp á þeim. „Dýraathvörf hafa tilkynnt að margir husky hundar séu yfirgefnir, eins og gerist oft þegar hundur er keyptur í bríaríi, án þess að skilja fyllilega þeirra þarfir,“ er haft eftir Dinklage sem hvetur fólk fremur til að taka að sér hunda í athvörfum.Husky-hundar eru ekki ósvipaðir úlfunum sem leika stóra rullu í Game of Thrones.Vísir/AFPGríðarleg aukning PETA samtökin, sem berjast fyrir réttindum og verndun dýra, hafa tekið saman tölur yfir aukningu yfirgefna hunda af þessari tegund. Samtökin vilja meina að fólk yfirgefi hundana þegar nýja brumið sé farið og þegar fólk uppgötvar vinnuna að baki því að sjá um hundinn. Frá því GOT hófu göngu sína árið 2011 hefur husky hundum fjölgað um 700 prósent í breskum dýraathvörfum. Talið er að á bilinu 10 til 81 hundur sé yfirgefinn árlega. Þá má sjá svipaða þróun í Norður- Kaliforníu í Bandaríkjunum. Í frétt Yahoo má sjá að hundamyndir á borð við 101 Dalmatíuhund og Legally Blonde höfðu sömu áhrif á neytendur sem keyptu sér dalmatíuhunda og chihuahua hunda í stórum stíl en gáfust loks upp.
Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Innlent Fleiri fréttir Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Sjá meira