Viðskipti innlent

Kvika hagnast um tæpan milljarð á fyrri árshelmingi

Hörður Ægisson skrifar
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir að starfsemin hafi gengið vel og afkoman vel umfram væntingar.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir að starfsemin hafi gengið vel og afkoman vel umfram væntingar.
Hagnaður Kviku banka nam 946 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins borið saman við 378 milljónir á sama tímabili í fyrra.  Mikill tekjuvöxtur var hjá bankanum og þannig jukust hreinar vaxtatekjur Kviku um 53 prósent og námu samtals 803 á fyrri árshelmingi 2017.

Þetta kemur fram í afkomutilkynningu frá bankanum en hreinar þóknanatekjur Kviku voru tæplega 1.300 milljónir á tímabilinu og jukust um 11 prósent á milli ára. Rekstrarkostnaður bankans lækkaði um 3,6 prósent og var rúmlega 1.600 milljónir.

Arðsemi eigin fjár á fyrstu sex mánuðum ársins var 26,2 prósent en eigið fé Kviku er um 8.200 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall Kviku var 23,1 prósent í lok júní á þessu ári.

Í tilkynningu bankans er haft eftir Ármanni Þorvaldssyni, forstjóra Kviku, að starfsemin hafi gengið vel og afkoman vel umfram væntingar. „Það er veruleg aukning í bæði þóknana- og vaxtatekjum og á sama tíma tókst að halda rekstrarkostnaði á áætlun. Góður árangur hefur náðst í uppbyggingu félagsins á undanförnum misserum og eiga starfsmenn Kviku mikið hrós skilið fyrir vel unnin störf og mikilvægt framlag til uppbyggingar bankans.

Við horfum fram á spennandi tíma á næstunni. Kvika festi nýverið kaup á öllu hlutafé í Virðingu og Öldu sjóðum. Kaupin eru nú til umfjöllunar hjá eftirlitsaðilum en gangi þau eftir verður Kvika einn umsvifamesti aðilinn á eignastýringarmarkaði með um 280 milljarða í stýringu,“ segir Ármann.

Kvika skoðar skráningu á markað

Þá segir í tilkynningunni að stjórn Kviku hafi ákveðið að skoða kosti þess að skrá bankann á First North markaðinn en það er norrænn hliðarmarkaður fyrir hlutabréfaviðskipti sem er sérsniðin fyrir félög í vexti. Ráðgert er að ákvörðun um hvort af skráningu bankans verði liggi fyrir í október á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×