Fótbolti

Dagný: Einn grófasti leikur sem ég hef spilað

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagný lagði upp mark Íslands gegn Sviss.
Dagný lagði upp mark Íslands gegn Sviss. vísir/tom
Dagný Brynjarsdóttir segir að vonbrigðin með að eiga ekki lengur möguleika á að komast áfram í 8-liða úrslit á EM séu mikil. En eru stelpurnar á betri stað í dag en þær voru í gær?

„Kannski aðeins, þótt ég sé persónulega ekkert á mikið betri stað. Við þurfum bara að nota til daginn til að hrista þetta af okkur svo við getum gírað okkur upp fyrir leikinn á móti Austurríki,“ sagði Dagný í samtali við Kolbein Tuma Daðason á æfingu landsliðsins í dag. Hún tók þó ekki þátt í henni frekar en aðrar sem voru í byrjunarliðinu í tapinu fyrir Sviss í gær. Þær voru í endurheimt, nuddi og teygðu á.

Eftir leikinn í gær hittu stelpurnar fjölskyldur sínar sem hafa stutt dyggilega við bakið á þeim.

„Það var gott að fá að hitta fjölskylduna en við hefðum kannski verið hressari og brosmildari ef þetta hefði endað með jafntefli eða sigri. En svona er þetta,“ sagði Dagný sem fylgdist með leik Frakklands og Austurríkis eins og aðrir leikmenn íslenska liðsins. Íslensku stelpurnar vildu sjá franskan sigur en jafntefli varð niðurstaðan og Ísland er því úr leik.

„Heppnin hefur ekki verið okkar megin. Eftir að við töpuðum fyrir Sviss hélt maður í trúna að Frakkarnir myndu klára sitt og við værum þá enn inni í þessu en svo varð ekki. Það var sárt að sjá að þetta væri búið,“ sagði Dagný sem fékk fyrir ferðina snemma leiks í gær.

Dagný sýnir takkaförin á maganum.vísir/tom
Lara Dickenmann, fyrirliði Sviss, fór þá með takkana í magann á Dagnýju en slapp með gult spjald.

„Það var mjög vont. Ég er svipuð og í gær. Þetta er bólgið og aumt meðan svo er. En þetta verður örugglega betra með hverjum deginum,“ sagði Dagný sem verður klár í leikinn gegn Austurríki á miðvikudaginn.

„Já, ég fékk þetta í byrjun leiks og kláraði hann. Þetta er ekkert sem stoppar mann.“

Leikurinn í gær var afar harður og mikið um átök og pústra. En áttu íslensku stelpurnar von á þeim svissnesku svona grófum?

„Ég var ekkert búin að pæla í því. Þær voru mjög grófar og þetta var örugglega einn grófasti leikur sem maður hefur spilað. Við vissum að þetta yrði harður leikur. Við erum harðar og líkamlega sterkar og liðin þurfa að búa sig undir það,“ sagði Dagný sem vill kveðja Holland með sigri á austurríska liðinu í Rotterdam á miðvikudaginn.

„Þegar maður fer í fótboltaleik ætlar maður alltaf að vinna. Þótt þessi síðasti leikur geri ekkert fyrir okkur ætlum við að stefna á sigur og enda þetta með stolti,“ sagði Dagný að lokum.


Tengdar fréttir

EM í dag: Grátur og gnístan tanna á Tjarnarhæðinni

Dómgæslan á mótinu fær sína gagnrýni en okkar menn líta líka raunsætt á hlutina. Af hverju hefur gengi liðsins hefur ekki verið betra, þ.e. stigasöfnunin þótt ekkert vanti upp á framlagið.

Sara Björk: Dickenmann er vanalega ekki svona gróf

Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, segir að það hafi verið erfitt að kyngja vonbrigðum gærdagsins; að tapa fyrir Sviss og fá svo staðfestingu á því að Íslandi ætti ekki lengur möguleika á að komast í 8-liða úrslit á EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×