Lífið

Framleiðandi Planet Earth gjörsamlega missti það og hótaði borgaralegri handtöku

Stefán Árni Pálsson skrifar
Atvikið hefur vakið mikla athygli í Bretlandi.
Atvikið hefur vakið mikla athygli í Bretlandi.
Bretinn Fergus Beeley hefur margoft starfað með Sir David Attenborough við gerð þáttanna Planet Earth og hefur hann haft það hlutverk að vera framleiðandi.

Myndband náðist af Beeley í vegkanti rétt við Southampton þar sem hann gjörsamlega missti stjórn á skapi sínu og það við bílstjóra bifreiðar og annað fólk á svæðinu.

Beeley var allt annað en sáttur með ökumanninn sem varð fyrir því óláni að rekast í bifreið Beeley er hann ætlaði að skipta um akrein.

Myndbandið hefur vakið mikla athygli en Beeley starfaði lengi vel hjá BBC og þykir nokkuð þekktur í Bretlandi.

Hann lét öllum illum látum og hótaði borgaralegri handtöku á staðnum, en Beeley vildi meina að ökumaðurinn væri hættulegur umhverfi sínu. Hér að neðan má sjá myndband sem náðist af atvikinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×