Myndin tekin tveimur árum áður en Earhart hvarf Samúel Karl Ólason skrifar 12. júlí 2017 13:50 Myndin umdeilda. Vísir/AFP
Umdeild ljósmynd sem á að sýna flugkonuna Ameliu Earhart og Fred Noonan í haldi Japana á Jaluit-rifi í Marhsall eyjaklasanum árið 1937 var tekin tveimur árum áður. Myndin birtist í ferðabók sem gefin var út í Japan árið 1936. Þetta segir Kota Yamano, en hann fann myndina í Þjóðskjalasafni Japan.History Channel birti um helgina þátt þar sem því var haldið fram að umrædd mynd hefði fundist á Þjóðskjalasafni Bandaríkjanna. Earhart hvarf árið 1937 þegar hún reyndi að fljúga hringinn í kringum jörðina. Síðast heyrðist til Earhart þann 2. júlí 1937 þegar hún var að reyna að fljúga hringinn í kringum heiminn ásamt Fred Noonan. Þau voru þá á flugi yfir Kyrrahafinu og er talið að þau hafi brotlent. Árið 1939 voru þau svo úrskurðuð látin, en líkamsleifar þeirra hafa þó aldrei fundist né flugvélin. Earhart var rétt tæplega 40 ára gömul þegar hún hvarf.Sjá einnig: Lést Amelia Earhart í haldi Japana?Í Þjóðskjalasafni Japan stendur ekkert við myndina um hverjir eru á henni, en hins vegar stendur að höfnin iði af lífi þegar mánaðarleg siglingakeppni innfæddra stendur yfir. Yamano segir samkvæmt Guardian að það hafi eingöngu tekið hann um hálftíma að fullvissa sig um að helstu rök History Channel þáttarins væru rugl. Hann fletti upp leitarorðinu Jaluit-rif og stillti leitina á tíu ár fram í tímann frá 1930. Myndin var sú tíunda sem birtist.Samsæriskenningar Í þætti History Channel var því ekki eingöngu haldið fram að á myndinni væru þau Earhart og Noonan og það hefði verið svo til gott sem sannað. Heldur var því einnig haldið fram að stjórnvöld í Washington hefðu vitað af því að þau hefðu verið handsömuð. Hún hefði mögulega „verið fyrsta fórnarlamb seinni heimsstyrjaldarinnar“. Margar kenningar um örlög Earhart og Noonan hafa litið dagsins ljós í gegnum tíðina. Sú sem þykir líklegust er að á leið til Howlandeyju hafi þau villst, orðið eldsneytislaus og brotlent í Kyrrahafi. Önnur kenning er að þau hafi brotlent á Nikumaroro-rifi og dáið þar. Beinagrind fannst á rifinu árið 1940, en læknar sögðu að um karlmann hefði verið að ræða. Þá mun einnig hafa fundist kassi með förðunarbúnaði á rifinu. Kenningin um að Earhart og Noonan hafi verið handsömuð af Japönum er ekki ný af nálinni og þessi nýja mynd þykir ekki líkleg til að varpa frekari ljósi á örlög þeirra.
Tengdar fréttir Lést Amelia Earhart í haldi Japana? Gömul mynd sem fannst nýlega í Þjóðskjalasafni Bandaríkjanna er sögð gefa í skyn að frægasti kvenkyns flugmaður sögunnar, Amelia Earhart, hafi ekki dáið í flugslysi í Kyrrahafinu. 6. júlí 2017 10:45 Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ný sýn fékk meirihluta Innlent Fleiri fréttir Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Sjá meira
Lést Amelia Earhart í haldi Japana? Gömul mynd sem fannst nýlega í Þjóðskjalasafni Bandaríkjanna er sögð gefa í skyn að frægasti kvenkyns flugmaður sögunnar, Amelia Earhart, hafi ekki dáið í flugslysi í Kyrrahafinu. 6. júlí 2017 10:45