Innlent

Röktu slóð Louise á gistiheimili vestur í bæ

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Louise Soreda er fædd árið 1995 en ekkert hefur til hennar spurst síðan hún kom til landsins þann 5. júlí síðastliðinn.
Louise Soreda er fædd árið 1995 en ekkert hefur til hennar spurst síðan hún kom til landsins þann 5. júlí síðastliðinn. Lögreglan á Suðurnesjum
Louise Soreda, franska konan sem leitað er að, gisti í tvær nætur á gistiheimili í Vesturbæ Reykjavíkur eftir komu hennar hingað til lands þann 5. júlí síðastliðinn. Hún sést þar á öryggismyndavélum í för með karlmanni.

Þetta herma heimilir fréttastofu. Louise bókaði hótelherbergið fyrir sig eina í júní síðastliðnum en óljóst er hvert hún fór í framhaldinu.

Fundu tjald og kvenmannsfatnað

Lögregla hefur fengið fjölmargar ábendingar frá því að lýst var eftir Louise í gær, og telur ekki þörf á að ráðast í formlega leit fyrr en búið er að vinna úr þeim gögnum sem borist hafa.  Á meðal gagna er útilegubúnaður, kvenmannsfatnaður og fleira sem fannst á Suðurlandi í vikunni en ekki er vitað að svo stöddu hvort það tilheyri Louise.

Jón Halldór Sigurðsson, lögreglumaður sem fer fyrir rannsókn málsins, staðfestir í samtali við Vísi að Louise sé talin vera í för með ferðafélaga, og segir hana ýmist hafa sést með karlmanni og kvenmanni, þó þær upplýsingar séu nokkuð á reiki. Nú sé unnið að því að finna út hver ferðafélaginn sé, en Louise kom ein hingað til lands.

Ekki tengst íslensku símkerfi

„Hún er bara mögulega á ferðalagi um landið og sér ekki íslenskar fréttir. Við erum að leita allra leiða til að hafa uppi á henni,“ segir Jón Halldór. Slökkt hefur verið á farsíma Louise og því ekki tekist að rekja símann. „Það erfiða í þessu máli er að hún hefur ekkert tengst íslenskum símkerfum né bankakerfum.“  

Louise er 22 ára og kom sem fyrr segir til Íslands fyrir átta dögum og var hún þá klædd í bláar gallabuxur, brúna fjallgönguskó og hvíta peysu, með bakpoka og viðlegubúnað. Föðursystir hennar sagði í samtali við Vísi í gær að Louise hefði farið án þess að láta nokkurn vita. Hún hafi hins vegar skilið eftir bréf til föður síns.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×