Sport

McGregor nuddaði skallann á Mayweather á síðasta blaðamannafundi þeirra | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mayweather og McGregor mætast í hringnum 26. ágúst.
Mayweather og McGregor mætast í hringnum 26. ágúst. vísir/getty
Fjórði og síðasti blaðamannafundurinn fyrir bardaga Floyds Mayweather og Conors McGregor fór fram á Wembley í London í kvöld.

Mayweather og Conor létu hvorn annan heyra það og eins og á hinum blaðamannafundunum og drógu hvergi undan.

Conor gekk m.a. svo langt að nudda skallann á Mayweather.

Sá bandaríski óskaði Íranum til hamingju með 29 ára afmælið sitt í dag og sagði að það væri það minnsta sem hann gæti gert áður en hann rústaði honum.

Umræddur bardagi fer fram í Las Vegas 26. ágúst næstkomandi.

Hér að neðan má sjá fjórða blaðamannafund Mayweathers og McGregors í heild sinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×