Golf

Valdís Þóra: Taugarnar voru þandar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valdís Þóra á Opna bandaríska.
Valdís Þóra á Opna bandaríska. mynd/seth/gsimyndir
Valdís Þóra Jónsdóttir freistar þess á næstu dögum að vinna sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í golfi.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Valdísi en í síðustu viku keppti hún á Opna bandaríska meistaramótinu, fyrst Íslendinga.

„Þetta var mjög skemmtilegt; risastórt mót og mikil umgjörð. Og það var gaman að sjá að það var ekkert minna sett í þetta en karlamótin,“ sagði Valdís í samtali við Vísi í golfskála Keilis í dag.

Hún viðurkennir að hafa fundið fyrir sviðsskrekk fyrst í stað á Opna bandaríska.

„Ég hefði viljað byrja betur en taugarnar voru þandar þótt maður hafi ekki fundið það almennilega. Það sáust högg sem hafa ekkert sést áður hjá mér og maður tengir það við stressið. En ég barðist allan tímann og komst í helling af færum,“ sagði Valdís.

Fyrir utan fyrstu holurnar var Valdís nokkuð sátt með frammistöðuna á Opna bandaríska.

„Fyrir utan þessar fyrstu sex holur spilaði ég mjög vel. Þessi byrjun fór með mig,“ sagði Valdís sem er nú mætt aftur til Íslands og tekur þátt á Íslandsmótinu á Hvaleyrarvelli sem hefst á morgun.

„Er þetta ekki bara eins?“ sagði Valdís aðspurð hvort það væru ekki viðbrigði að koma heim eftir að hafa keppt á risamóti eins og Opna bandaríska.

„Völlurinn er fínu standi. Nýju holurnar eru flottar og það verður skemmtilegt að spila þær á mótinu,“ sagði Valdís sem varð Íslandsmeistari 2009 og 2012. Hún missti af Íslandsmeistaratitlinum í fyrra eftir mikið einvígi við Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur sem verður ekki með á Íslandsmótinu að þessu sinni.


Tengdar fréttir

Valdís Þóra: Var einhver hræðsla í byrjun

Valdís Þóra Jónsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn á sínu fyrsta risamóti á ferlinum, Opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem fer nú fram á Trump National Golf Club í New Jersey.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×