Golf

Pressa á heimamanninum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Axel er sigurstranglegur á heimavelli.
Axel er sigurstranglegur á heimavelli. mynd/seth/gsimyndir
Axel Bóasson verður á heimavelli á Íslandsmótinu í golfi sem hefst á Hvaleyrarvelli á morgun.

„Þetta leggst vel í mig og ég er mjög spenntur að spila á heimavelli,“ sagði Axel sem varð Íslandsmeistari 2011. Hann er bjartsýnn á gott gengi á Íslandsmótinu í ár.

„Jájá, auðvitað. Ég er búinn að spila rosalega vel upp á síðkastið á Norðurlandamótaröðinni. Ég er mjög spenntur að byrja þetta,“ sagði Axel.

Hann hefur verið á góðu skriði að undanförnu og skemmst er frá því að segja að hann vann SM Match á Norðurlandamótaröðinni í Svíþjóð í byrjun mánaðarins. Þetta var hans fyrsti sigur á Norðurlandamótaröðinni.

„Þetta var holukeppnismót á Norðurlandamótaröðinni. Ég komst í gegnum sex umferðir og landaði sigrinum. Ég spilaði mjög flott golf og var sáttur með það,“ sagði Axel. En hvað gefur sigurinn honum í framhaldinu?

„Ég er númer tvö á stigalistanum og ef ég held þeirri stöðu get ég komist á Áskorendamótaröðina sem yrði mjög stórt skref upp á við fyrir mig. Ég ætla að halda mínu striki,“ sagði Axel og viðurkennir að það sé pressa á honum að vinna á heimavelli.

„Maður hefur fengið ýmsar athugasemdir að maður eigi að vinna þetta. Það er ekkert skrítið að maður sé spurður að þessu. En það eru margir frábærir kylfingar að spila og ég verð bara að halda mínu striki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×