Körfubolti

Boston landaði Hayward

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hayward kveður Utah eftir sjö tímabil í herbúðum liðsins.
Hayward kveður Utah eftir sjö tímabil í herbúðum liðsins. vísir/getty
Körfuboltamaðurinn Gordon Hayward er genginn í raðir Boston Celtics frá Utah Jazz. Hayward gerði fjögurra ára samning við Boston sem færir honum 128 milljónir Bandaríkjadala í laun.

Hjá Boston hittir hinn 27 ára gamli Hayward fyrir gamla þjálfarann sinn úr háskóla, Brad Stevens.

Hayward var valinn númer níu af Utah í nýliðavali NBA-deildarinnar 2010.

Hann hefur bætt sig ár frá ári síðan hann kom inn í NBA og síðasta tímabil var hans besta. Hayward var með 21,9 stig, 5,4 fráköst og 3,5 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur. Í úrslitakeppninni var hann með 24,1 stig, 6,1 frákast og 3,4 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Boston vann 53 leiki á síðasta tímabili og komst í úrslit Austurdeildarinnar þar sem liðið tapaði fyrir Cleveland Cavaliers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×