Körfubolti

Þessir eiga möguleika á því að komast á EM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það verður ekki auðvelt fyrir Pedersen að velja lokahópinn.
Það verður ekki auðvelt fyrir Pedersen að velja lokahópinn. vísir/stefán
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari í körfubolta, er búinn að velja 24 leikmenn í æfingahóp sinn fyrir EM.

Þessir leikmenn munu mæta til æfinga þann 20. júlí. Hópurinn verður svo minnkaður í 14 til 15 leikmenn en á endanum munu aðeins 12 komast með á EM.

Landsliðið mun undirbúa sig fyrir EM með æfingaleikjum gegn Belgíu hér heima þann 27. og 29. júlí.

Svo verður farið í tvær æfingaferðir í ágúst áður en haldið verður til Finnlands á mótið. Okkar menn munu heimsækja Rússland, Ungverjaland og Litháen í æfingaferðinni.

Hópurinn:

Axel Kárason, Tindastóll

Brynjar Þór Björnsson, KR

Dagur Kár Jónsson, Grindavík

Elvar Már Friðriksson, Barry University, USA

Gunnar Ólafsson, St. Francis University, USA

Haukur Helgi Pálsson, Cholet Basket, Frakklandi

Hlynur Bæringsson, Stjarnan

Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík

Jón Arnór Stefánsson, KR

Jón Axel Guðmundsson, Davidson University, USA

Kári Jónsson, Drexel University, USA

Kristinn Pálsson, Marist University, USA

Kristófer Acox, KR

Logi Gunnarsson, Njarðvík

Martin Hermannsson, Châlon-Reims, Frakklandi

Matthías Orri Sigurðarson, ÍR

Ólafur Ólafsson, Grindavík

Pavel Ermolinskij, KR

Pétur Rúnar Birgisson, Tindastóll

Ragnar Ágúst Nathanaelsson, Arcos Albacete, Spáni

Sigtryggur Arnar Björnsson, Skallagrímur

Sigurður Gunnar Þorsteinsson, AE Larissas, Grikklandi

Tryggvi Snær Hlinason, Þór Akureyri

Ægir Þór Steinarsson, San Pablo Inmobiliaria Burgos, Spáni




Fleiri fréttir

Sjá meira


×