Innlent

Ekki á dagskrá að sameina MR og Kvennó

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Kristján Þór Júlíusson, Menntamálaráðherra segir að ekki sé til skoðunar að sameina Menntaskólann í Reykjavík og Kvennaskólann.
Kristján Þór Júlíusson, Menntamálaráðherra segir að ekki sé til skoðunar að sameina Menntaskólann í Reykjavík og Kvennaskólann. Mynd/samsett
„Það hefur ekki staðið til að sameina þessa tvo skóla,“ segir Kristján Þór Júlíusson Menntamálaráðherra.

Í Fréttablaðinu í morgun er greint frá því að Linda Rós Michaelsdóttir, kennari í MR sem starfaði jafnframt sem rektor skólans og konrektor um tíma, hafi áhyggjur af því að sameina eigi Menntaskólann í Reykjavík og Kvennaskólann.

Hún gagnrýnir harðlega að menntamálaráðuneytið hafi enn ekki auglýst starf rektors MR, þótt meira en mánuður sé liðinn frá því að Yngi Pétursson, fráfarandi rektor, sagðist ætla að láta af starfinu.

„Mig grunar að það sé verið að gera enn eina tilraunina til að sameina skólana og gera stóran skóla,“ segir Linda Rós í samtali við Fréttablaðið. Það yrði þá hugsanlega sameining Menntaskólans í Reykjavík og Kvennaskólans í Reykjavík. Það yrði „enn eitt stórslysið“ í menntakerfinu að hennar mati.

Sameining Tækniskólans og Fjölbrautarskólans í Ármúla er enn til skoðunar.Vísir/Eyþór
Líkt og kom fram hér að ofan stendur ekki til að sameina MR og Kvennaskólann. „Það er í sjálfu sér ekkert skrítið að fólk sé að velta fyrir sér ýmsu varðandi framhaldsskólann,“ segir Kristján Þór. „Það þarf líka tíma til að átta sig á því hvernig breytingar sem koma fram í ríkisfjármálaáætlun og lúta að framhaldsskólunum koma til með að virka.“

Þá ítrekar hann að ekki sé búið að taka ákvörðun um sameiningu Fjölbrautarskólans í Ármúla og Tækniskólans.

„Það er ekkert nýtt að frétta,“ segir Kristján. „En við höfum verið að skoða þetta og það er ekki búið að taka neinar ákvarðanir. Eðli málsins samkvæmt hljótum við að gera kröfu á stjórnvöld hvers tíma að þau skoði þá kosti sem í stöðunni eru þegar að nemendum á framhaldsskólastigi er að fækka um 600 á ári hér á höfuðborgarsvæðinu. Þá verðum við að skoða fyrirkomulag fræðslunnar en ég ítreka það að það er ekki búið að taka neinar ákvarðanir í þeim efnum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×