Handbolti

Þórey Anna í Stjörnuna

Anton Ingi Leifsson skrifar
Þórey handsalar samninginn.
Þórey handsalar samninginn. vísir/facebook-síða Stjörnunnar
Þórey Anna Ásgeirsdóttir er genginn í raðir Stjörnunnar frá Gróttu þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö ár, en þetta kemur fram á Facebook-síðu Stjörnunnar.

Þórey getur leikið bæði í hægri skyttunni og hægra horninu, en hún er örvhent. Hún hefur leikið 21 A-landsleik fyrir Ísland og skorað ellefu mörk.

Hún er einmitt í æfingarhóp A-landsliðsins núna sem æfir og undirbýr sig fyrir æfingarferð til Danmerkur í byrjun júlí þar sem liðið leikur æfingarleiki gegn dönskum félagsliðum.

Stjarnan varð bæði deildar- og bikarmeistari, en tapaði fyrir Fram í úrslitaeinvíginu 3-1. Þetta er liðsstyrkur fyrir Stjörnuna sem ætlar sér greinilega stóra hluti á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×