Modric hefur átt betri daga: Bar vitni í fjársvikamáli eftir tapið gegn Íslandi Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. júní 2017 10:30 Luka Modric í leik með króatíska landsliðinu. vísir/getty
Luka Modric, leikmaður Evrópumeistara Real Madrid og króatíska landsliðsins, hefur átt betri daga en þá þrjá síðustu. Sky Sports greinir frá. Hann bar fyrirliðaband króatíska liðsins á Laugardalsvellinum á sunnudaginn þar sem strákarnir okkar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Modric og félaga að velli, 1-0, með marki Harðar Björgvins Magnússonar. Modric gat svo ekki flogið beint í sumarfrí eins og flestir aðrir sem spiluðu sama leik því hann þurfti að fara heim til Zagreb og bera vitni í fjársvikamáli gegn Zdravko Mamic, fyrrverandi framkvæmdastjóra Dinamo Zagreb, en hann gengdi þeirri stöðu frá 2003-2016. Modric viðurkenndi fyrir dómstólum að hann samdi við Mamic um að greiða Dinamo Zagreb helming upphæðarinnar sem Tottenham keypti hann á sumarið 2008 en kaupverðið var á milli 18,5 og 20,2 milljóna punda. Króatíski miðjumaðurinn viðurkenndi einnig að eftir að hann lét félagið fá sinn skerf lét hann bróður og son Mamic fá óuppgefna upphæð í reiðufé. „Það sem ég vildi gera var að greiða upp allar mínar skuldir við Mamic svo ég skuldaði honum ekki neitt í framtíðinni,“ sagði Luka Modric fyrir rétti. Zdravko Mamic er einnig ákærður fyrir að hafa dregið að sér fé í sölum á nokkrum leikmönnum frá Zagreb-liðinu en í dag mætir Dejan Lovren, leikmaður Liverpool, fyrir réttinn og vitnar um sölu sína frá Dinamo Zagreb til Lyon í Frakklandi. Zdravko Mamic er, þrátt fyrir þessi réttarhöld, enn þá talinn valdamesti maðurinn í króatíska fótboltanum.
Fótbolti Mest lesið Leik lokið: Valur - Grindavík | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Körfubolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Stjarnan handtekin á leiðinni á völlinn: „Hann er á leið í fangelsi“ Golf Efsti kylfingur á heimslista á yfir höfði sér fjórar ákærur Golf Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Handbolti Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Enski boltinn Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Upphafshöggi frestað vegna banaslyss skammt frá vellinum Golf Fleiri fréttir Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Sjá meira
Leik lokið: Valur - Grindavík | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Körfubolti
Leik lokið: Valur - Grindavík | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Körfubolti