Sport

Ekkert MMA á dagskrá er Conor og Mayweather berjast

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hér má sjá fyrsta auglýsingaskiltið sem Showtime hefur gert fyrir ofurbardaga Mayweather og McGregor.
Hér má sjá fyrsta auglýsingaskiltið sem Showtime hefur gert fyrir ofurbardaga Mayweather og McGregor.
Það var ekki farið að ráðum Gunnars Nelson er verið var að semja um boxbardaga á milli Conor McGregor og Floyd Mayweather.

Þetta verður venjulegur boxbardagi og ekki notaðir minni hanskar eins og Gunnar stakk upp á. Honum fannst það sniðug hugmynd til þess að jafna leikinn aðeins enda er Conor heimsmeistari í blönduðum bardagalistum en ekki hnefaleikum.

Mayweather er 49-0 í hnefaleikum en Conor er 0-0. Hann hefur aldrei barist í alvöru hnefaleikabardaga. Írinn byrjar á einum af þeim bestu í sögunni.

UFC mun ekki koma að skipulagningu kvöldsins sem er í höndum fyrirtækis Mayweather og Showtime-sjónvarpsstöðvarinnar. UFC mun þó koma að kynningarstarfi og meðal annars vera með Embedded-þættina sína í aðdraganda bardagans.

Þetta verður hnefaleikakvöld og allir upphitunarbardagarnir verða hnefaleikabardagar. Óljóst er hverjir fá tækifæri til þess að taka þátt í kvöldina stóra sem er þann 26. ágúst.

Ekki er heldur búið að taka ákvörðun um verðið á bardaganum fyrir sjónvarpsáhorfendur. Kaupa þarf sérstakan aðgang að kvöldinu, Pay Per View, en verðið verður líklega yfir 10 þúsund kallinum.

Þó svo Conor fái ekki að nota minni hanska þá fær hann að keppa í þeirri vigt sem hann er meistari hjá UFC. Búist var við því að Mayweather vildi keppa í lægri þyngdarflokki en hann var sáttur við að keppa í tæplega 70 kílógramma flokki.

MMA

Tengdar fréttir

Dana White: Conor er 100% viss um að vinna

Dana White, forseti UFC, segir að Conor McGregor sé handviss um að hann muni sigra Floyd Mayweather þegar þeir mætast í hringnum þann 26. ágúst næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×